
Elínarsæti á Elínarhöfða. Ljósm. vaks
Villa í upplýsingaskilti
Við Elínarhöfða í Kalmansvík á Akranesi er að finna listaverkið Elínarsæti eftir Guttorm heitinn Jónsson sem lést árið 2014. Listaverkið var sett upp á þessum stað af Akraneskaupstað árið 2000. Þjóðsagan segir að nafnið Elínarhöfði komi frá Elínu, systur Sæmundar fróða. Elín átti eina systur að nafni Halla en hún bjó í Straumfirði á Mýrum. Elín flutti frá Odda á Suðurlandi árið 1104 þegar mikið eldgos varð í Heklu og settist að á Elínarhöfða. Þegar Elín vildi ná tali af systur sinni settist hún í sæti sitt við höfðann og veifaði klút sínum og Halla sat þá á Höllubjargi við Straumfjörð. Sagan segir að þær systur hafi rætt saman á þennan hátt, án allrar nútímatækni.