Fallegt útsýni spillir ekki aðsókninni að þessum vinsæla matarvagni á Arnarstapa. Ljósmyndir: af

Nóg að gera í rekstri matarvagns á Arnarstapa

Frista food matarvagn á Arnarstapa á Snæfellsnesi nýtur mikilla vinsælda hjá ferðamönnum sem koma við til að skoða fallega náttúru og fuglalífið. Þangað er stöðugur straumur ferðamanna allt sumarið. Tékkinn Filip Procházka hefur rekið matarvagninn frá því á síðasta ári og er óhætt að segja að Filip hafi slegið í gegn með góðan en jafnframt ódýran skyndimat. Filip segir í samtali við fréttaritara Skessuhorns að hann hafi flutt vagninn ofar í þorpiðð og er mun betra aðgengi að nýja staðnum. Hann segir jafnframt að meira en nóg sé að gera hjá honum.

Nóg að gera í rekstri matarvagns á Arnarstapa - Skessuhorn