Fréttir

true

Mikið stuð í Hopplandi á heitum sumardegi

Það var fjölmenni og mikið fjör við bryggjuna við Bakkatún á Akranesi á mánudaginn þar sem fyrirtækið Hoppland er með aðstöðu. Krakkar á öllum aldri voru að hoppa af miklum móð af bryggjunni eða sjódýfingapallinum sem er alls átta metrar að hæð og ekki annað að sjá en að allir væru að skemmta sér konunglega.…Lesa meira

true

Ævintýra Víking-sushi ferð um Breiðafjörð

Marígull, hafkóngur, nákuðungur, kræklingur, skollakoppur, stórkrossi og fleiri tegundir af sjávarbotni þekja veisluborðið. Við erum stödd um í borð í Særúnu, tvíbytnu Sæferða í Stykkishólmi sem siglir tvisvar á dag í tveggja tíma skoðunarferðir milli eyjanna á Breiðafirði. Auk þess að sigla þétt upp að snarbröttum klettaveggjum eyjanna, þar sem fuglarnir í bjarginu taka á…Lesa meira

true

Haukadalsá að gefa flottar bleikjur

Haukadalsvatn í Haukadal býður uppá mikla möguleika fyrir alla að renna fyrir fisk, en bæði veiðist bleikja og lax í vatninu. Tíðindamaður Skessuhorns fór um svæðið um helgina og það voru margir að veiða. Flestir veiðimenn veiddu þar á flugu. Einhver var veiðin; fiskurinn var verulega vænn og vakti víða um vatnið. Haukadalsvatn er síðsumarsvatn…Lesa meira

true

Íþróttamaður vikunnar- Er jákvæð og opin

Nafn: Aldís Ásgeirsdóttir Fjölskylduhagir? Maki og tvö börn í Grundarfirði Hver eru þín helstu áhugamál? Mín helstu áhugamál um þessar mundir eru golf, crossfit og fjallahjól. Hvernig er venjulegur dagur hjá þér um þessar mundir? Venjulegur dagur hjá mér er frekar breytilegur þessa dagana, það er ekki mikil rútína í gangi. Við vöknum með börnunum…Lesa meira

true

Baráttan á sér tilgang

Rætt við Erlend Samúelsson sem er gleðin hugstæð þrátt fyrir erfiðleika lífsins Fyrir um það bil tíu árum urðu tímamót í lífi Erlends Samúelssonar sem var þá rúmlega fimmtugur. Hann hafði alla tíð verið veikur og fengið hita og verki af óþekktum ástæðum. Það var svo ekki fyrr en árið 2013 sem hann fékk skýringu…Lesa meira

true

Yfirheyrslan

Fer mannavillt að meðaltali þrisvar á dag Nafn: Sigrún Ósk Kristjánsdóttir Hvar ertu fædd og hvenær? Reykjavík, haustið 1980. Hvernig myndir þú lýsa þér í þremur orðum? Glaðlynd, hugmyndarík og örlítið viðutan. Áttu gæludýr? Nei. Hvers saknarðu mest frá því í gamla daga? Snjallsímaleysis. Ég myndi heldur ekki slá hendinni á móti bláum Ópal. Hvað…Lesa meira

true

Mikið um hraðakstur í umdæminu

Afskipti voru höfð af rúmlega 50 ökumönnum í liðinni viku vegna gruns um of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Fimm ökumenn eru grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Fimm umferðaróhöpp komu inn á borð lögreglu, öll minni háttar en eymsli eða minni háttar slys á fólki í einhverjum þeirra.Lesa meira

true

Vegagerðin hafnaði tilboði Sæferða

Vegagerðin hefur hafnað tilboði Sæferða í fólks- og vöruflutninga yfir Breiðafjörð frá Stykkishólmi til Brjánslækjar með viðkomu í Flatey. Þetta upplýsir G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar í samtali við Morgunblaðið sem kom út í dag. Sæferðir voru eina fyrirtækið sem bauð í siglingar yfir Breiðafjörð á skipinu Röst sem keypt var frá Noregi og er…Lesa meira

true

Skallagrímur með sigur á Uppsveitum

Það var nóg af mörkum í leik Uppsveita og Skallagríms þegar liðin áttust við í 4. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi á Probygg vellinum á Flúðum í Hrunamannahreppi. Heimamenn komust yfir á fimmtu mínútu með marki Sigurjóns Reynissonar en Alejandro Serralvo Gomez jafnaði metin fyrir gestina eftir rúman korters leik. Sölvi Snorrason kom síðan…Lesa meira

true

Í eyjasiglingu um Breiðafjörð

Þetta unga taílenska par var meðal hundrað annarra gesta Sæferða í Stykkishólmi í eyjasiglingu um Breiðafjörð með Særúnu á laugardaginn. Þau nutu, að eigin sögn, ferðarinnar í botn og ekki síður landsins sem þau voru að heimsækja í fyrsta skipti. Sérstaklega nefndu þau hreina og ferska loftið sem lífsgæði sem þau hefðu ekki kynnst áður.…Lesa meira