
Ævintýra Víking-sushi ferð um Breiðafjörð
Marígull, hafkóngur, nákuðungur, kræklingur, skollakoppur, stórkrossi og fleiri tegundir af sjávarbotni þekja veisluborðið. Við erum stödd um í borð í Særúnu, tvíbytnu Sæferða í Stykkishólmi sem siglir tvisvar á dag í tveggja tíma skoðunarferðir milli eyjanna á Breiðafirði. Auk þess að sigla þétt upp að snarbröttum klettaveggjum eyjanna, þar sem fuglarnir í bjarginu taka á móti gestum af stóískri ró, er plógur dreginn eftir botninum í nokkrar mínútur. Upp kemur fjölbreytt veislufang og þaðan er nafn ferðanna Víking sushi dregið. Ekki vitum við hvort hinir sönnu víkingar nýttu sér þetta sjávarfang til átu, en vel má það vera því einmitt skammt frá þeim stað sem plógnum var skellt niður er víkin þar sem Eiríkur rauði og sonur hans Leifur áttu að hafa dvalið nokkra daga í felum eftir að hafa farið vígaför uppi á fasta landinu. Eiríki gekk eins og kunnugt er illa að lynda við aðra menn og var rekinn bæði frá Noregi og Íslandi eftir að hann var dæmdur sekur vegna vígaferla. Hann fór m.a. í Brokey á Breiðafirði en var einnig rekinn þaðan fyrir „dólg.“ Loks hélt hann í vesturátt, fann Grænland og nam þar land. Leifur sonur hans fetaði í landkönnuðarfótspor föður síns og fann Ameríku eins og frægt er orðið.