Fréttir

true

Rúgur í Reykholtsdal

Þegar rætt er um íslenskan landbúnað er kornrækt ekki endilega það fyrsta sem kemur upp í hugann. En vegna hlýnandi veðurs í landinu hafa betri skilyrði skapast og korn er nú ræktað víða um land auk þess sem gerðar hafa verið tilraunir með ræktun hafra og rúgs. Meðal þeirra sem það hafa reynt er Magnús…Lesa meira

true

Pósthlaupið verður á laugardaginn

Pósthlaupið verður haldið á laugardaginn í Dölum. Um er að ræða skemmtilegt utanvegahlaup eftir gamalli póstleið sem liggur frá Hrútafirði yfir í Búðardal. Ragnar Kristinsson, viðskiptastjóri hjá Póstinum, bregður sér í hlutverk hlaupastjóra um helgina. „Veðurspáin er góð, hlaupa- og gönguveður eins og best verður á kosið og tilvalið að taka laugardagshlaupið í stórbrotinni náttúru.…Lesa meira

true

Mikið um hraðakstur í umdæminu

Rúmlega 50 ökumenn eru grunaðir um of hraðan akstur í liðinni viku í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Tveir ökumenn eru grunaðir um að hafa ekið undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og þá reyndist einn ökumaður vera sviptur ökuréttindum þegar af honum voru höfð afskipti. Einn var stöðvaður á nagladekkjum sem fullsnemmt er að brúka núna…Lesa meira

true

Segja olíufélögin hafa lítilsvirt neytendur og valdið þeim tjóni

„Íslensku olíufélögin eru aðlöguð fákeppni og virðast stundum gleyma grunngildum góðra viðskipta um virðingu og þjónustulund gagnvart viðskiptavinum.“ Þannig er komist að orði í nýlegri færslu á heimasíðu Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB). Ástæða þessara skrifa er sú að í vor var hætt að selja 95 oktana bensín hér á landi og skyndilega, án aðvörunar til…Lesa meira

true

Sæferðir gátu ekki beðið svara frá Vegagerðinni og sögðu upp öllu starfsfólki

Sæferðir eru í eigu Eimskips og hefur fyrirtækið m.a. sinnt rekstri Breiðafjarðarferjunnar Baldurs. Fyrirtækið sagði í gær upp öllum 22 starfsmönnum sínum í ljósi óvissu um hvort Sæferðir muni áfram sinna ferjusiglingum yfir Breiðafjörð. Tilboð fyrirtækisins í siglingar fyrir árin 2023-2026 reyndist yfir kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar og þrátt fyrir að nýja skipið Röst eigi að hefja…Lesa meira

true

Matvælastofnun kærir húnvetnska bændur til lögreglu

„Matvælastofnun hefur kært tvo bændur á Norðurlandi vestra til lögreglu fyrir að hundsa fyrirmæli yfirdýralæknis. Þeir hafa neitað að afhenda stofnuninni kindur sem þeir höfðu fengið frá nágrannabæ en þar hafði allt fé verið skorið niður vegna riðusmits.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá MAST. „Það er álit stofnunarinnar að með synjun sinni stofni bændurnir…Lesa meira

true

Eins og að lifa aðra Íslandssögu

Rætt við Pál Bergþórsson frá Fljótstungu Árið 2000 var Páll Bergþórsson veðurfræðingur heiðraður á alþjóðlegri ráðstefnu fyrir fjölþættan skerf sinn til veðurvísinda. Voru þar m.a. tilgreindar hafísrannsóknir, veðurvísindi og rannsóknir á víxláhrifum manns og náttúru. En margt fleira mætti til telja sem hann hefur afrekað og lagt til samfélagsins. Páll fagnar hundraðasta afmælisdegi sínum í…Lesa meira

true

Auðarskóli gerir samning um sérfræðiþjónustu

Byggðarráð Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum síðasta fimmtudag samning Auðarskóla við Ásgarð skólaráðgjöf um sérfræðiþjónustu við starfsfólk Auðarskóla, leik- og grunnskóla sveitarfélagsins og framkvæmd menntastefnu ríkisins. Ásgarður býður upp á sérfræðiþjónustu við framkvæmd skólastarfs í leik- og grunnskólum. Markmið samningsins er fyrst og fremst að efla Auðarskóla sem faglega stofnun með kerfisbundnum stuðningi við stjórnendur,…Lesa meira

true

Ný smábátahöfn og varnargarður á Brjánslæk

Í vor var ný smábátahöfn sett niður við Brjánslæk en grjótgarðurinn sem lokar henni af var gerður í fyrrahaust og var svo steyptur stöpull þarna í vor og bryggjan sett niður. Á næstu vikum verður lokið við að ganga frá rafmagni á nýju flotbryggjuna og þá verður hún tilbúin. Blaðamaður heyrði í Jóhanni Pétri Ágústssyni…Lesa meira

true

Snör viðbrögð komu í veg fyrir stórbruna í Einkunnum

Klukkan 19:36 í kvöld voru allar deildir Slökkviliðs Borgarbyggðar, auk björgunarsveitarfólks úr Brák, kallaðar út vegna gróðurelds sem kviknað hafði í fólkvanginum Einkunnum, um þrjá kílómetra ofan við Borgarnes. Jörð er afar þurr eftir þurrka allan þennan mánuð og svæðið einkennist af þykkri gróðurþekju og skógi. Heiðar Örn Jónsson slökkviliðsstjóri segir í samtali við Skessuhorn…Lesa meira