
Magnús er ánægður með þroska rúgsins og nú er að vonast eftir góðu hausti. Ljósmyndir/ gj
Rúgur í Reykholtsdal
Þegar rætt er um íslenskan landbúnað er kornrækt ekki endilega það fyrsta sem kemur upp í hugann. En vegna hlýnandi veðurs í landinu hafa betri skilyrði skapast og korn er nú ræktað víða um land auk þess sem gerðar hafa verið tilraunir með ræktun hafra og rúgs. Meðal þeirra sem það hafa reynt er Magnús Þór Eggertsson bóndi sem býr í Ásgarði í Reykholtsdal ásamt konu sinni Sjöfn Guðlaugu Vilhjálmsdóttur. Þau festu kaup á jörðinni fyrir um 35 árum og búa með kýr, Ásgarður er annað kúabúið af tveimur sem eftir eru í dalnum og er það mikil fækkun búa í þeirri búgrein frá því sem áður var.