Pósthlaupið verður á laugardaginn

Pósthlaupið verður haldið á laugardaginn í Dölum. Um er að ræða skemmtilegt utanvegahlaup eftir gamalli póstleið sem liggur frá Hrútafirði yfir í Búðardal. Ragnar Kristinsson, viðskiptastjóri hjá Póstinum, bregður sér í hlutverk hlaupastjóra um helgina. „Veðurspáin er góð, hlaupa- og gönguveður eins og best verður á kosið og tilvalið að taka laugardagshlaupið í stórbrotinni náttúru. Það verður vel tekið á móti hlaupurum þegar þeir koma í mark. Boðið verður upp á veitingar í Búðardal og fjölskyldufjör, hoppukastala, þrautabraut, glímusýningu og ís frá Erpsstöðum svo eitthvað sé nefnt,“ segir Ragnar.

Pósthlaupið verður á laugardaginn - Skessuhorn