
Snör viðbrögð komu í veg fyrir stórbruna í Einkunnum
Klukkan 19:36 í kvöld voru allar deildir Slökkviliðs Borgarbyggðar, auk björgunarsveitarfólks úr Brák, kallaðar út vegna gróðurelds sem kviknað hafði í fólkvanginum Einkunnum, um þrjá kílómetra ofan við Borgarnes. Jörð er afar þurr eftir þurrka allan þennan mánuð og svæðið einkennist af þykkri gróðurþekju og skógi.
Heiðar Örn Jónsson slökkviliðsstjóri segir í samtali við Skessuhorn að það megi einungis þakka skjótum og fumlausum viðbrögðum slökkviliðsmanna og annarra viðbragðsaðila að ekki varð stórbruni sem mjög erfitt hefði verið við að eiga á þessum stað. „Það mátti litlu muna að eldurinn næði að breiðast út og þá hefði verið mjög erfitt að eiga við þetta. Eldurinn kviknar langt inn í skógi og erfitt að komast að honum með tæki. Eldurinn var byrjaður að læsa sig í grenitré sem þarna eru og aðstæður voru mjög krefjandi,“ segir Heiðar. Farið var á svæðið með dælubíla og önnur tæki slökkviliðsins og notaðir um 30 þúsund lítrar af vatni til að slökkva eldinn og eftir það var bleytt í jarðvegi til að útiloka að glóð leyndist í sverðinum.
Nokkur hundruð fermetrar lands brunnu. Slökkvistarfi lauk upp úr klukkan 22 í kvöld. Að sögn Heiðar Arnar mun lögregla fara með rannsókn á eldsupptökum.