Fréttir

true

Hús af öllum gerðum á Skaganum – Myndasyrpa

Blaðamaður Skessuhorns skellti sér á rúntinn í gær á Akranesi og var ætlunin að setja sig í stellingar og taka myndir af húsum og framkvæmdum af ýmsum toga. Það gekk bara vel enda fullt í gangi af framkvæmdum víðs vegar í bænum og margt að skoða. Landslagið breytist visssulega í þéttbýlum bæ þegar nýbyggingar rísa,…Lesa meira

true

Tveir fóru holu í höggi í vikunni hjá Golfklúbbnum Leyni

Síðasta þriðjudag gerði hinn 14 ára Arnar Gunnarsson sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 18. braut á Garðavelli á Akranesi. Arnar var að spila í liðakeppni Blikkksmiðju Guðmundar þegar hann sló draumahöggið sitt en til þess notaði hann átta járn í verkið. Tveimur dögum áður fór hinn 90 ára gamli kylfingur Guðmundur…Lesa meira

true

Opið fyrir skráningu á unglingalandsmót UMFÍ

Til mánaðamóta verður opið fyrir skráningu á Unglingalandsmót UMFÍ sem haldið verður á Sauðárkróki að þessu sinni. „Nú er aldeilis farið að styttast í Unglingalandsmót UMFÍ um verslunarmannahelgina. Mótið verður afar fjölbreytt og skemmtilegt, 18 íþróttagreinar í boði og gríðarlegur fjöldi af kynningum á mörgu skemmtilegu sem ekki þarf að skrá sig í. Mikilvægt er…Lesa meira

true

Reykholtshátíð hefst á morgun

Reykholtshátíð verður haldin um komandi helgi, dagana 28.-30. júlí. Dagskrá hátíðarinnar samanstendur af fernum tónleikum sem bjóða upp á kammerverk, kórverk og einsöngslög. Einnig er fyrirlestur á vegum Snorrastofu fastur liður á dagskrá hátíðarinnar ásamt hátíðarmessu sem fara mun fram sunnudaginn 30. júlí kl. 14. Fyrirlesari þetta árið er Friðrik Erlingsson, skáld og handritshöfundur, en…Lesa meira

true

Halda til aðstoðar félögum sínum á Suðurnesjum

Sex slökkviliðsmenn frá Slökkviliði Borgarbyggðar lögðu í morgun af stað til Grindavíkur. Þeir fara til aðstoðar kollegum sínum á Reykjanesi sem daglega berjast við gróðurelda sem nú loga við gosstöðvarnar við Litla-Hrút. Meðfylgjandi mynd er að FB síðu slökkviliðsins.Lesa meira

true

Hótel Búðir nú alfarið í eigu Hengils fasteignafélags

Í síðustu viku seldi Fjárfestingafélagið Ernir hlut sinn í Hótel Búðum á Snæfellsnesi. Kaupandi er Hengill fasteignir ehf. sem fyrir átti helming hlutafjár á móti Örnum. Á Hengill þar með allt hlutafé í hótelinu. Eigendur Hengils ehf. er m.a. Hólmsver ehf. sem er í eigu Hreiðars Más Sigurðssonar og Önnu Lísu Sigurjónsdóttur. Aðrir hluteigendur eru…Lesa meira

true

Fín veiði á Vatnasvæði Lýsu

„Veiðin gekk vel hjá okkur í Lýsunni um helgina, en ég var að leiðsegja veiðimönnum á svæðinu,“ sagði Magnús Anton Magnússon sem þekkir Vatnasvæði Lýsu einkar vel. „Veiðin gekk vel hjá okkur, mikið af bleikju og nokkrir laxar á land en það voru fyrstu laxarnir sem komnir eru í veiðibókina. Við fengum um helgina sex…Lesa meira

true

Ævar Þór skrifar Martröð

Leikarinn og rithöfundurinn Ævar Þór Benediktsson skrifaði um miðjan júlí undir samning við Sagafilm og RÚV um skrif á nýrri leikinni þáttaseríu fyrir sjónvarp. Ævar segir í tilkynningu sinni á facebook að þáttaserían muni koma til með að verða ráðgátu-hryllings-þriller fyrir unglinga og eldri, stúttfull af húmor og hjarta. Þáttaröðin mun heita Martröð en ekki…Lesa meira

true

Stofnuðu rafverktakafyrirtæki og vilja innleiða snjallhúsið til Íslands

Rætt við Arnar Grétarsson og Katarzynu Nocuń sem saman reka rafverktakafyrirtækið Raffix Arnar Grétarsson er alinn upp á bænum Höll í Þverárhlíð í Borgarfirði en býr í dag í Borgarnesi ásamt kærustu sinni Katarzynu Nocuń, eða Kasia eins og hún er gjarnan kölluð. Kasia er frá Póllandi en kom til Íslands til að starfa á…Lesa meira

true

Endurbótum að ljúka við smábátahöfnina í Búðardal

Unnið hefur verið að endurbótum á smábátahöfninni í Búðardal síðustu daga og fer þeim senn að ljúka. Fram kemur á þjónustuvef Dalabyggðar að skipt hefur verið um stagkeðjur, ankeri fyrir bryggju og landfestur. Jafnframt voru endurnýjuð innsiglingarljós og flóðlýsing ásamt því að bryggja var yfirfarin að öðru leyti. Í framhaldi af þessum framkvæmdum verður svo…Lesa meira