Á Asparskógum 1 eru ÞG verktakar að byggja fjölbýlishús með 28 íbúðum og búið er að afhenda nokkra íbúðir. Flestar íbúðirnir eru seldar. Ljósm. Skessuhorn/vaks

Hús af öllum gerðum á Skaganum – Myndasyrpa

Blaðamaður Skessuhorns skellti sér á rúntinn í gær á Akranesi og var ætlunin að setja sig í stellingar og taka myndir af húsum og framkvæmdum af ýmsum toga. Það gekk bara vel enda fullt í gangi af framkvæmdum víðs vegar í bænum og margt að skoða. Landslagið breytist visssulega í þéttbýlum bæ þegar nýbyggingar rísa, ýmist á nýjum stöðum eða í staðinn fyrir hús sem orðið hafa að víkja.

Hús af öllum gerðum á Skaganum – Myndasyrpa - Skessuhorn