Tölvugerð mynd af Hótel Búðum eftir stækkun þess sem nú stendur yfir. Hönnuður að stækkun hótelsins er Kári Eiríksson arkitekt en hann teiknaði einnig núverandi hótel.

Hótel Búðir nú alfarið í eigu Hengils fasteignafélags

Í síðustu viku seldi Fjárfestingafélagið Ernir hlut sinn í Hótel Búðum á Snæfellsnesi. Kaupandi er Hengill fasteignir ehf. sem fyrir átti helming hlutafjár á móti Örnum. Á Hengill þar með allt hlutafé í hótelinu. Eigendur Hengils ehf. er m.a. Hólmsver ehf. sem er í eigu Hreiðars Más Sigurðssonar og Önnu Lísu Sigurjónsdóttur. Aðrir hluteigendur eru Andri Gunnarsson lögmaður, Jonathan Rubini og Ablo ehf. sem er í eigu Halldórs Hafsteinssonar og Sigurlaugar Sverrisdóttur. Hengill fasteignir eiga nú fjögur hótel en auk Búða á félagið hótelin ION city og Hótel Von sem bæði eru staðsett á Laugavegi í Reykjavík, auk ION Adventure á Nesjavöllum á Suðurlandi. Unnið hefur verið að stækkun Hótel Búða undanfarið ár. Tafir hafa orðið á lok verkefnisins, en nú er samkvæmt heimildum Skessuhorns stefnt á að opna viðbyggingu hótelsins fyrir árslok.

Hótel Búðir nú alfarið í eigu Hengils fasteignafélags - Skessuhorn