
Reykholtshátíð hefst á morgun
Reykholtshátíð verður haldin um komandi helgi, dagana 28.-30. júlí. Dagskrá hátíðarinnar samanstendur af fernum tónleikum sem bjóða upp á kammerverk, kórverk og einsöngslög. Einnig er fyrirlestur á vegum Snorrastofu fastur liður á dagskrá hátíðarinnar ásamt hátíðarmessu sem fara mun fram sunnudaginn 30. júlí kl. 14. Fyrirlesari þetta árið er Friðrik Erlingsson, skáld og handritshöfundur, en hann mun flytja erindið Fingraför Sæmundar Fróða laugardaginn 29. júlí kl. 13 í Snorrastofu. Margir listamannanna sem koma að hátíðinni í ár eru af Vesturlandinu og hafa rótgróin tengsl við Borgarfjörð enda mikið af hæfileikaríku tónlistarfólki ættað úr landshlutanum.