
Eigendur bensínknúinna garðverkfæra hafa margir lent í stökustu vandræðum í sumar. Fjölmargir hafa gefist upp og keypt sér rafhlöðuknúin verkfæri og tæki.
Segja olíufélögin hafa lítilsvirt neytendur og valdið þeim tjóni
„Íslensku olíufélögin eru aðlöguð fákeppni og virðast stundum gleyma grunngildum góðra viðskipta um virðingu og þjónustulund gagnvart viðskiptavinum.“ Þannig er komist að orði í nýlegri færslu á heimasíðu Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB).