Fréttir

true

Segja húsaleigusamning við Ikan hafa verið svikinn

Eigendur Ikan ehf, þau Þorsteinn Máni Árnason og María Sigurjónsdóttir, hafa sent Fornbílafélagi Borgarfjarðar (FB) opið bréf. Ikan hefur eins og kunnugt er endurleigt af FB hluta gömlu fjárréttarinnar í Brákarey, en hefur ekki haft aðgang að húsnæðinu frá því í febrúar fyrir hálfu þriðja ári síðan, eftir að húsum í Brákarey var lokað af…Lesa meira

true

Aukið grugg í neysluvatninu frá Grábrókarveitu

Aukning hefur orðið á gruggi í neysluvatni frá vatnsbóli Veitna í Grábrókarhrauni í Norðurárdal í kjölfar jarðskjálfta upp á 5,2 stig sem varð klukkan 22:23 í gærkvöldi. „Svona aukning getur minnkað vatnsgæði en verið er að taka sýni til staðfestingar,“ segir í tilkynningu frá Veitum. Í varúðarskyni er viðkvæmum neytendum bent á að sjóða neysluvatn…Lesa meira

true

Eldur kom upp í rúllusamstæðu á Hjarðarfelli

Það óhapp varð á bænum Hjarðarfelli í Eyja- og Miklaholtshreppi um nónbil í gær að eldur kom upp í rúllusamstæðu þegar Gunnar Guðbjartsson bóndi var að rúlla og pakka heyi. Sótt voru tiltæk slökkvitæki heim á bæ og þess freistað að slökkva eldinn í vélinni þar sem hún stóð. Þar sem það tókst ekki var…Lesa meira

true

Þrír fórust þegar lítil flugvél brotlenti

Þrír létust þegar flugvél brotlenti á hálendinu austanverðu síðdegis í gær. Tveir farþegar voru um borð í flugvélinni ásamt flugmanni. Þeir voru allir úrskurðaðir látnir á vettvangi. Umfangsmikil leit hófst undir kvöld um leið og boð barst frá neyðarsendi vélarinnar. Allar tiltækar björgunarsveitir á Austurlandi og fleiri voru kallaðir til leitar. Flak vélarinnar fannst um…Lesa meira

true

Dramatískt jafntefli hjá Kára á Grenivík

Lið Kára gerði 3:3 jafntefli þegar liðið heimsótti Magna til Grenivíkur á laugardag í 3. deildinni. Marteinn Theódórsson tryggði jafnteflið með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Það voru heimamenn í Magna sem náðu forystunni á 12. mínútu leiksins þegar Kristófer Óskar Óskarsson skoraði úr vítaspyrnu. En Káramenn náðu af jafna metin á 28. mínútu með…Lesa meira

true

Þrenna frá Heimi Þór tryggði Reyni sigurinn

Reynir frá Hellisandi vann góðan 3:2 sigur gegn Breiðhyltingum í KB í A-riðli 5. deildar í leik sem fram fór á Ólafsvíkurvelli á laugardaginn. Það var Heimir Þór Ásgeirsson sem kom Reynismönnum yfir strax á 9. mínútu leiksins en Emil Örn Benediktsson náði svo að jafna leikinn fyrir Breiðhyltinga á 38. mínútu. Aðeins tveimur mínútum…Lesa meira

true

Halda tónleika í Akranesvita og á Vatnasafninu

Hljóðheimur víólunnar – tónleikar fyrir tvær víólur og hús, verða á dagskrá á tveimur stöðum á Vesturlandi næstu daga. Þeir fyrri verða í Akranesvita fimmtudaginn 13. júlí kl. 17 en þeir síðari í Vatnasafninu í Stykkishólmi föstudaginn 14. júlí klukkan 17. Íslensk-þýska víóludúóið Duo Borealis er skipað Önnu Hugadóttur og Annegret Mayer-Lindenberg. Þau fagna 20…Lesa meira

true

Strandveiðum lýkur væntanlega í vikunni

Landssambandi smábátaeigenda barst fyrir helgi svar frá Matvælaráðuneytinu við erindi félagsins þar sem óskað var eftir 4.000 tonna hækkun á aflaviðmiðun strandveiðisjómanna í þorski. „Vísað er til erindis Landssambands smábátaeigenda til matvælaráðherra, dags. 25. júní sl., þar sem farið er þess á leit við ráðherra að koma í veg fyrir stöðvun strandveiða með hækkun aflaviðmiða…Lesa meira

true

Leikið á Langasandi

Veðrið hefur leikið við landsmenn um helgina. Á Vesturlandi hefur hitinn farið í 24 stig, meðal annars í Húsafelli, en örlítið svalara er út við ströndina enda golan vestanstæð. Meðfylgjandi myndir voru teknar við Langasand á Akranesi nú rétt í þessu. Þar er fjölmenni sem nýtur útiverunnar, fjölskyldufólk að byggja sandkastala, fólk að kæla sig…Lesa meira

true

Skagakonur með stórsigur gegn Sindra

Skagakonur gerður góða ferð til Hornafjarðar á sunnudaginn og sigruðu þar botnlið Sindra örugglega 7:0. Róberta Lilja Ísólfsdóttir gaf tóninn strax á annarri mínútu leiksins þegar hún skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Skagakonur. Á 11. mínútu bætti Bryndís Rún Þórólfsdóttir öðru marki við og á 23. mínútu varð Telma Pais Bastos í liði Sindra fyrir…Lesa meira