13. apríl 2021 var húsnæðið sem um ræðir í Brákarey innsiglað af lögreglu. Ekki hefur mátt ganga um það síðan, en leigutakinn greitt húsaleigu til dagsins í dag. Ljósm. úr safni Skessuhorns.

Segja húsaleigusamning við Ikan hafa verið svikinn

Eigendur Ikan ehf, þau Þorsteinn Máni Árnason og María Sigurjónsdóttir, hafa sent Fornbílafélagi Borgarfjarðar (FB) opið bréf. Ikan hefur eins og kunnugt er endurleigt af FB hluta gömlu fjárréttarinnar í Brákarey, en hefur ekki haft aðgang að húsnæðinu frá því í febrúar fyrir hálfu þriðja ári síðan, eftir að húsum í Brákarey var lokað af kröfu eldvarnareftirlits og Borgarbyggðar. Stjórn Fornbílafélagsins, sem leigusala, er í bréfinu gert ljóst að lög gilda um útleigu húsnæðisins sem byggir á leigusamningi sem gerður var 2018. Líta leigutakar svo á að samningnum hafi ekki verið rift. „Um samband leigusala og leigutaka gilda sérstök lög, Húsaleigulög nr. 36/1994. Eiga þau lög fortakslaust við um leigusamband FB við eiganda húsnæðisins og Ikan ehf,“ segir í bréfinu frá Ikan.