
Aukið grugg í neysluvatninu frá Grábrókarveitu
Aukning hefur orðið á gruggi í neysluvatni frá vatnsbóli Veitna í Grábrókarhrauni í Norðurárdal í kjölfar jarðskjálfta upp á 5,2 stig sem varð klukkan 22:23 í gærkvöldi. „Svona aukning getur minnkað vatnsgæði en verið er að taka sýni til staðfestingar,“ segir í tilkynningu frá Veitum. Í varúðarskyni er viðkvæmum neytendum bent á að sjóða neysluvatn til drykkjar en óhætt er að nota vatnið til annarra þarfa. Vatnið er gegnumlýst til að koma í veg fyrir óæskilegar örverur en virkni lýsingar getur minnkað við aukið grugg.
Vatnsbólið frá Grábrók þjónar Bifröst og Varmalandi auk fjölda sumarhúsa og nokkurra lögbýla í Borgarfirði. Borgarnes fær nú vatn frá Seleyri og Hafnarfjalli og ná tilmælin því ekki til íbúa og fyrirtækja í Borgarnesi.
„Vatnsból Veitna í Grábrókarhrauni er viðkvæmara fyrir skjálftavirkni en önnur vatnsból okkar og hafa sérfræðingar Veitna verið að störfum í alla nótt. Heilbrigðiseftirlit Vesturlands er að taka sýni til að staðfesta vatnsgæði og munu niðurstöður liggja fyrir á morgun. Við erum að biðja viðkvæma neytendur að sjóða vatn eingöngu í varúðarskyni þar til niðurstöður mælinga liggja fyrir,“ segir Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastýra Veitna. Þá segir hún að til að tryggja brunavarnir er ekki unnt að taka vatnsbólið úr rekstri.