
Leikið á Langasandi
Veðrið hefur leikið við landsmenn um helgina. Á Vesturlandi hefur hitinn farið í 24 stig, meðal annars í Húsafelli, en örlítið svalara er út við ströndina enda golan vestanstæð. Meðfylgjandi myndir voru teknar við Langasand á Akranesi nú rétt í þessu. Þar er fjölmenni sem nýtur útiverunnar, fjölskyldufólk að byggja sandkastala, fólk að kæla sig í sjónum og kajakræðarar á ferð.