Fréttir

true

Skjálftavirkni mjög að aukast á Reykjanesi

Jarðaskjálftahrina er nú hafin á Reykjanesi og hafa á 17. hundrað skjálftar mælst frá því í gær. Sá stærsti var um klukkan 7:46 í morgun, um 4,6 stig, og fannst hann vel á Akranesi og í Borgarnesi. Fólk heyrði hvin á undan skjálftanum og glös glömruðu í skápum. Nú stendur yfir fundur vísindamanna Veðurstofunnar og…Lesa meira

true

Vinnu við deiliskipulag í Skipavík er lokið

Deiliskipulagstillaga fyrir hafnarsvæðið í Skipavík í Stykkishólmi var samþykkt í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms 29. júní sl. Skipulagið var samþykkt samhljóða á 12. fundi skipulagsnefndar og 4. fundi í hafnarstjórn en óeining var um málið í bæjarstjórn þar sem fjórir bæjarfulltrúar H-listans samþykktu tillöguna en þrír bæjarfulltrúar Í-listans greiddu atkvæði á móti. Skipulagsfulltrúa er nú falið…Lesa meira

true

Opnunarhátíð á Adventure Hotel Hellissandur á laugardaginn

Heimamenn á Hellissandi hafa beðið í þó nokkurn tíma eftir að Hótel Hellissandur verði endurvakið en ekki hefur verið mikil starfsemi á hótelinu síðustu ár. Nýir eigendur hafa fest kaup á hótelinu og mun það koma til með að heita Adventure Hotel Hellissandur og er í eigu Arctic Adventures. Fyrirtækið skipuleggur, selur og sér um…Lesa meira

true

Valdi klippti á borðann við opnun Suðurgötu á Akranesi

Í tilkynningu frá Veitum í byrjun júlí 2022 varðandi framkvæmdir við Suðurgötu á Akranesi kom fram að þegar framkvæmdir hófust í janúar á síðasta ári leit út fyrir að um frekar einfalt verkefni yrði að ræða, tengja átti nýjar byggingarlóðir inn á núverandi veitukerfi auk þess að leggja nýjan háspennustreng að væntanlegri spennustöð á Sementsreit.…Lesa meira

true

Skinkuhorn – Almar Viðarsson

Langaði að hágrenja þegar ég kom í mark Skagamaðurinn Almar Viðarsson er gestur Skinkuhornsins þessa vikuna. Almar tók nýlega þátt í Ironman þríþrautarkeppni í Hamborg í Þýskalandi og var þetta í þriðja sinn sem hann tekur þátt í keppninni. Í Ironman eru fyrst syntir 3,8 kílómetrar, svo eru hjólaðir 180 km og endað á að…Lesa meira

true

Missti stjórn á bíl og hjólhýsi

Um kvöldmatarleytið síðasta mánudag var hringt í Neyðarlínuna og tilkynnt um umferðaróhapp á Vesturlandsvegi við Bifröst. Tildrögin voru þau að bifreið með hjólhýsi í eftirdragi ók ofan í lægð eða holu á veginum. Hjólhýsið fór í framhaldinu að rása á veginum og reyndi ökumaður að gera allt sem í hans valdi stóð til að rétta…Lesa meira

true

Bekkur í minningu Gurra á golfvellinum – myndir

Skagamaðurinn Gurri, Guðráður G. Sigurðsson, lést á síðasta ári, langt fyrir aldur fram. 2. júlí er afmælisdagur Gurra og í minningu hans hafa fjölskylda og vinir safnað fyrir fallegum og vönduðum granít bekk sem staðsettur er á golfvellinum. Síðasta sunnudag kom fjölskylda Gurra og vinir saman við holu 18 á golfvellinum og var vígsla á…Lesa meira

true

Tvö skemmtiferðaskip lögðust að bryggju í Grundarfirði

Komur skemmtiferðaskipa á Snæfellsnes eru ansi tíðar þessi misserin. Síðasta laugardag voru þrjú skip í Grundarfirði þar sem eitt þeirra lagðist að bryggju. Svo komu tvö skip í gær og lögðust bæði að bryggjunni. Þetta er ekki einsdæmi en er þó einhver mesta nýting á hafnarkantinum frá upphafi. Skipið Seabourn Venture er rúmir 170 metrar…Lesa meira

true

Reynir del Norte Tríó spilar í Landnámssetrinu á morgun

Reynir del Norte Tríó efnir til tónleika í Landnámssetrinu á morgun, miðvikudaginn 5. júlí. „Tróið munu spila ýmis þekkt íslensk lög í sínum einstaka búningi ásamt eigin tónsmíðum Reynis. Þjóðlög, Flamenco, Jazz og grúv,” segir í tilkynningu frá tríóinu en tónleikarnir eru liður í hljómleikaferðalagi tríósins um landið. Stefnan er meðal annars tekin á Þjóðlagahátíðina…Lesa meira

true

Samþykkja tilboð í Víkurhverfi í Stykkishólmi

Í vor var auglýst útboð vegna Víkurhverfis í Stykkishólmi. Um er að ræða jarðvinnu, lagnavinnu og gatna- og gangstéttagerð í nýju íbúðahverfi. Eitt tilboð varst í verkið frá BB og sonum og var það um 30% hærra en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á. Var bæjarstjóra falið að ræða við BB og syni og aðra verkkaupa, Veitur…Lesa meira