Reynir del Norte tríó.

Reynir del Norte Tríó spilar í Landnámssetrinu á morgun

Reynir del Norte Tríó efnir til tónleika í Landnámssetrinu á morgun, miðvikudaginn 5. júlí.

„Tróið munu spila ýmis þekkt íslensk lög í sínum einstaka búningi ásamt eigin tónsmíðum Reynis. Þjóðlög, Flamenco, Jazz og grúv," segir í tilkynningu frá tríóinu en tónleikarnir eru liður í hljómleikaferðalagi tríósins um landið. Stefnan er meðal annars tekin á Þjóðlagahátíðina á Siglufirði.
Hljómsveitina skipa Reynir del Norte á gítar, Einar Scheving á slagverki og Birgir Steinn Theódórsson á kontrabassa.  Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00. Forsala á tónleikana er á TIX.IS en einnig eru miðar seldir við hurð. 

„Reynir del Norte er einn atkvæðamesti fulltrúi spænska gítarleiksins á Íslandi og hefur haldið ótal tónleika og námskeið hér á landi og um Evrópu. Reynir kemur fram sem einleikari, meðleikari eða sem sólisti í sínum fjölmörgu tónlistarverkefnum. Reynir hefur búið um árabil á Spáni til að leggja stund á Flamenco tónlistarflutning en einnig verið iðinn við tónleikahald á Íslandi. Reynir fékk viðurkenningu úr Miningarsjóði Kristjáns Eldjárns árið 2022 fyrir sitt framlag til gítarleiks á Íslandi. Birgir Steinn Theodórsson kontrabassaleikari hefur verið virkur í íslensku tónlistarlífi síðustu ár. Hann kláraði Fíh vorið 2015 og fór beint út til Berlínar í framhaldinu. Hann útskrifaðist frá UDK/Hans Eisler/Jazz institut Berlin í maí 2021. Einar Scheving er einn eftirsóttasti trommu- og slagverksleikari landsins, enda hefur hann starfað með flestum fremstu tónlistarmönnum landsins og það þvert á tónlistarstíla, þ.m.t. jazz, pop, latin og samtímatónlist. Einar er einnig margverðlaunaður tónhöfundur og hefur hann gefið út fjórar plötur í eigin nafni. Hann hefur margoft verið tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna og hreppt þau fjórum sinnum, ýmist fyrir plöturnar eða sem tónhöfundur. Einar starfar sem kennari við Menntaskóla í tónlist og við Tónlistarskóla FÍH," segir í tilkynningu.

Reynir del Norte Tríó spilar í Landnámssetrinu á morgun - Skessuhorn