
Bekkur í minningu Gurra á golfvellinum – myndir
Skagamaðurinn Gurri, Guðráður G. Sigurðsson, lést á síðasta ári, langt fyrir aldur fram. 2. júlí er afmælisdagur Gurra og í minningu hans hafa fjölskylda og vinir safnað fyrir fallegum og vönduðum granít bekk sem staðsettur er á golfvellinum. Síðasta sunnudag kom fjölskylda Gurra og vinir saman við holu 18 á golfvellinum og var vígsla á minningarbekknum um Gurra. Bekkurinn reyndar verður staðsettur við holu 8 sem var uppáhalds hola Gurra. Mikill fjöldi var saman kominn til að heiðra minningu Gurra og átti góða stund saman. Guðmundur Bjarki Halldórsson var á staðnum og tók nokkrar myndir fyrir Skessuhorn.