
Ljósm. Stykkisholmur.is
Samþykkja tilboð í Víkurhverfi í Stykkishólmi
Í vor var auglýst útboð vegna Víkurhverfis í Stykkishólmi. Um er að ræða jarðvinnu, lagnavinnu og gatna- og gangstéttagerð í nýju íbúðahverfi. Eitt tilboð varst í verkið frá BB og sonum og var það um 30% hærra en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á. Var bæjarstjóra falið að ræða við BB og syni og aðra verkkaupa, Veitur ohf., Rarik ohf. og Mílu ehf., og leggja fram tillögu um afgreiðslu málsins.