Fréttir

true

Litir fjölbreytileikans málaðir á Kirkjubrautina

Um nónbil í dag var byrjað að mála neðsta hluta Kirkjubrautar frá Akratorgi á Akranesi í glaðlegum litum regnbogafánans. Það er gert í tilefni af Hinseginhátíð Vesturlands 2023 sem að þessu sinni verður haldin á Akranesi á og dagana í kringum laugardaginn 22. júlí næstkomandi. Til að hefja götumálninguna tóku þátt fulltrúar frá Akraneskaupstað, Hinsegin…Lesa meira

true

Senda umsögn um skipulagslýsingu vegna Jaðarsbakka

Hópur sem telur 41 einstakling á Akranesi hefur sent bæjarstjórn Akraneskaupstaðar gagnyrta umsögn vegna auglýstrar skipulagslýsingar aðal- og deiliskipulags Jaðarsbakka á Akranesi. Hópurinn vill vernda Jaðarsbakka og Langasand sem næst núverandi notkun svæðisins og mótmælir þeim fyrirætlunum sem uppi eru um m.a. byggingu hótels, íbúða og annarrar starfsemi á alls 17,5 ha svæði meðfram Langasandi.…Lesa meira

true

Fékk golfkylfu í höfuðið

Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í sjúkraflutning í Grundarfjörð nú rétt í þessu. Samkvæmt heimildum Skessuhorns hafði maður fengið golfkylfu í höfuðið og eftir skoðun hjá lækni var talið ráðlegt að flytja hann undir læknishendur í Reykjavík. Tildrög óhappsins liggja ekki fyrir og ekki var búið að skrá málavöxtu í gagnabanka lögreglu þegar Skessuhorn leitaði þar upplýsinga…Lesa meira

true

Mikill erill hjá lögreglu á Írskum dögum um helgina

Bæjarhátíðin Írskir dagar fór fram um helgina á Akranesi og var í nógu að snúast hjá lögreglu alla helgina, sérstaklega laugardag og sunnudag. Að sögn Ásmundar Kristins Ásmundssonar yfirlögregluþjóns hjá Lögreglunni á Vesturlandi var mikið um ölvunarmál, slagsmál og æsing og töluvert um ölvun hjá þeim sem voru undir 18 ára aldri. Talsvert var um…Lesa meira

true

Veginum um Kjalarnes lokað í kvöld

Í kvöld á milli klukkan 19:00 og 05:00 í nótt verður Brautarholtsvegur á Kjalarnesi og Hringvegur (1) malbikaðir. Brautarholtsvegi verður lokað og Hringveginum lokað til suðurs milli kl. 22 og 05. Vegagerðin bendir á hjáleiðir um Hvalfjarðarveg (47), Kjósarskarð (48) og Mosfellsdal (36).Lesa meira

true

Reynir tapaði stórt fyrir Úlfunum

Reynir Hellissandi og Úlfarnir léku á laugardaginn í A riðli 5. deildar karla í knattspyrnu á miðri Ólafsvíkurvöku og var leikurinn á gervigrasvellinum í Snæfellsbæ. Það var ljóst snemma í leiknum að heimamenn áttu við ofurefli að etja enda voru Úlfarnir í öðru sæti deildarinnar. Haukur Steinn Ragnarsson kom Úlfunum yfir eftir rúman korters leik…Lesa meira

true

Víða er þörf fyrir grisjun í vötnum landsins

Fátt er skemmtilegra en fara með stöng og veiða silung í vötnum. Þetta er jafnvel gott fjölskyldusport og ekki skemmir þegar von er á að sá stóri bíti á agnið. Víða í vötnum er þó þörf fyrir verulega meiri grisjun. Slíkt er beinlínis nauðsynlegt til að vötnin verði ekki ofsetin sem aftur þýðir að fiskurinn…Lesa meira

true

Skemmtiferðaskip eiga viðkomu á Akranesi

Tvö af þeim þremur skemmtiferðaskipum sem væntanleg eru á Akranes í sumar hafa undanfarna daga verið á ferðinni. Á laugardaginn kom Seabourn Venture með 250 farþega og lá við ankeri utan við höfnina meðan farþegar voru ferjaðir í land. Í morgun kom svo Seabourn Ovation með um 600 farþega og lá við ankeri utan við…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði fyrir Árborg

Árborg og Skallagrímur áttust við í áttundu umferð 4. deildar karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var leikurinn á Jáverk-vellinum á Selfossi. Skallagrímsmenn hófu leikinn af krafti, pressuðu heimamenn hátt uppi á vellinum en voru kannski aðeins of djarfir í byrjun. Aron Freyr Margeirsson kom Árborg yfir á 5. mínútu og síðan skoraði Kristinn Sölvi…Lesa meira

true

Víkingur hélt toppsætinu með þriðja sigrinum í röð

Víkingur Ólafsvík tók á móti Þrótti Vogum í toppslag í 2. deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var leikurinn á Ólafsvíkurvelli. Víkingur komst yfir í leiknum á 21. mínútu þegar Mikael Hrafn Helgason skoraði úr endurtekinni vítaspyrnu eftir að Þórhallur Ísak Guðmundsson markvörður Þróttar hafði varið fyrra vítið. Aðeins mínútu síðar tvöfaldaði Daði Kárason…Lesa meira