Við veiðar í Meðalfellsvatni. Ljósm. María Gunnarsdóttir

Víða er þörf fyrir grisjun í vötnum landsins

Fátt er skemmtilegra en fara með stöng og veiða silung í vötnum. Þetta er jafnvel gott fjölskyldusport og ekki skemmir þegar von er á að sá stóri bíti á agnið. Víða í vötnum er þó þörf fyrir verulega meiri grisjun. Slíkt er beinlínis nauðsynlegt til að vötnin verði ekki ofsetin sem aftur þýðir að fiskurinn verður smærri. Við grisjun eru lögð net í vötnin og veitt kerifsbundið úr þeim, jafnvel hundruð eða þúsundir kílóa. Hérna áður fyrr var farið með net í vötnin og bændur og/eða veiðiréttareigendur veiddu silung til nytja. Þannig slógu þeir í raun tvær flugur í einu höggi; nýttu fiskinn og grisjuðu vötnin. Nefna má nokkur dæmi um vötn þar sem smátittir hafa tekið yfir; smáfiskur sem enginn nennir að veiða og hvað þá hirða.

Víða er þörf fyrir grisjun í vötnum landsins - Skessuhorn