
Seabourn Venture lá utan við Akraneshöfn á laugardaginn og setti skemmtilegan svip á bæjarmyndina meðan bæjarhátíðin Írskir dagar stóð sem hæst. Ljósm. Tomasz Wisła.
Skemmtiferðaskip eiga viðkomu á Akranesi
Tvö af þeim þremur skemmtiferðaskipum sem væntanleg eru á Akranes í sumar hafa undanfarna daga verið á ferðinni. Á laugardaginn kom Seabourn Venture með 250 farþega og lá við ankeri utan við höfnina meðan farþegar voru ferjaðir í land. Í morgun kom svo Seabourn Ovation með um 600 farþega og lá við ankeri utan við aðalhafnargarðinn. Helmingur farþeganna kaus að fara í land. Stærsti hluti þess hóps fór strax með lítilli ferju til Reykjavíkur, um 60 manna hópur festi kaup á skoðunarferð að Hraunfossum og Grábrók í Borgarfirði og loks voru nokkrir sem kusu að rölta um Akranes. Eitt skip til viðbótar er væntanlegt í sumar, en Seabourn Venture er skráð með aðra viðkomu 12. ágúst.