
Senda umsögn um skipulagslýsingu vegna Jaðarsbakka
Hópur sem telur 41 einstakling á Akranesi hefur sent bæjarstjórn Akraneskaupstaðar gagnyrta umsögn vegna auglýstrar skipulagslýsingar aðal- og deiliskipulags Jaðarsbakka á Akranesi. Hópurinn vill vernda Jaðarsbakka og Langasand sem næst núverandi notkun svæðisins og mótmælir þeim fyrirætlunum sem uppi eru um m.a. byggingu hótels, íbúða og annarrar starfsemi á alls 17,5 ha svæði meðfram Langasandi. Fyrir hópnum fara Gísli Gíslason, Gunnar Sigurðsson, Jón Gunnlaugsson, Hörður Helgason og Sturlaugur Haraldsson sem titla sig áhugamenn um aðstöðu íþróttahreyfingarinnar á Jaðarsbökkum, verndun Langasands og aðgengi almennings að svæðinu. „Undirrituð leggja áherslu á vandaðan undirbúning fyrirhugaðra breytinga og virku samráði við almenning. Við treystum því einnig að breytingarnar gangi ekki gegn náttúru svæðisins, aðgengi almennings og nýtingu þess fyrir íþróttafólk til lengri framtíðar.“