Fréttir

true

Innritun lokið í FVA og MB

Starfsmenn Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi (FVA) hafa staðið í ströngu undanfarið við að innrita nemendur í skólann fyrir næstu önn. Aðsókn í skólann var með ágætum og hafa verið innritaðir alls 119 nemendur beint úr 10. bekk ásamt fjölda eldri umsækjenda sem innritast í bók- og iðnnám. Alls verða rúmlega 520 nemendur í skólanum í…Lesa meira

true

Hættulegir staðir farnir að skapast á Snæfellsnesvegi og Vestfjarðavegi

„Næsta aðgerð er að draga niður umferðarhraða,“ segir Pálmi Þór Sævarsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar. Á fundi stjórnar Samtaka Sveitarfélaga á Vesturlandi sem fram fór á dögunum var m.a. rætt um vegamál á Vesturlandi. Pálmi Þór Sævarsson svæðisstjóri Vegagerðarinnar var gestur fundarins og sagði frá stöðu vegamála á Vesturlandi. Í kjölfar umræðu um viðhald á Snæfellsnesvegi (54)…Lesa meira

true

Fjöldi fólks mætt á Landsmót 50+ í Stykkishólmi

Landsmót 50+ er hafið í Stykkishólmi og fjöldi fólks mætt í bæinn. Fjöldi þátttakenda mætti á slaginu klukkan sex í gær í íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi þegar afhending hófst á mótsgögnum fyrir mótið. Þótt mótið sé að grunni hugsað fyrir fimmtíu ára og eldri geta allir 18 ára og eldri, sem áhuga hafa á keppnisíþróttum og…Lesa meira

true

Auglýsa eftir samstarfi við áætlunina Gott að eldast

Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs Akraneskaupstaðar þriðjudaginn 20. júní kom fram að Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið auglýsa eftir samstarfi við sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir sem vilja vinna að þróunarverkefnum um samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Með samþættingu er átt við að rekstur þjónustunnar sé á einni hendi, jafnt mannafla- sem fjármálastjórn.…Lesa meira

true

Skrúðganga í fullum skrúða

Það var gífurlegur mannfjöldi sem safnaðist saman á Stillholti á Akranesi í morgun þegar skrúðgangan á Norðurálsmótinu var að leggja af stað. Alls eru skráðir um 1800 þáttakendur til leiks á mótinu sem fram fer um helgina. Sólin lét vita af sér við upphaf göngunnar og vonandi að hún verði á vaktinni alla helgina. Kolbrún…Lesa meira

true

Ráðherra er ánægð með ákvörðun sína

Fullt var út úr dyrum á opnum fundi Verkalýðsfélags Akraness á Gamla Kaupfélaginu á Akranesi í gærkvöld. Á að giska um 300 gestir sátu fundinn sem var hitafundur í sinni tærustu mynd. Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA opnaði fundinn og tók fyrstur til máls. Hann sagði málið ekki snúast um það hvort fólk sé með eða…Lesa meira

true

Breyting á heildsölu- og lágmarksverði til framleiðenda

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs á ógerilsneyddri mjólk í lausu máli. Verðbreytingin tekur gildi þann 1. júlí n.k. Lágmarksverð 1.fl. mjólkur til bænda hækkar þá um 0,99%, úr 124,96 kr./ltr í 126,20 kr./ltr. og heildsöluverð á ógerilsneyddri mjólk í lausu máli hækkar um 0,88%, úr 140,48 kr./ltr…Lesa meira

true

Efla heilbrigðisþjónustu í síma 1700 og með netspjalli

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ýtt úr vör kynningarátaki á aukinni þjónustu og ráðgjöf um heilsutengd málefni í símanúmerinu 1700 og á netspjalli Heilsuveru. Markmiðið með eflingu þjónustunnar er að auka þjónustu við almenning með heilbrigðistengdri ráðgjöf og vegvísun í viðeigandi þjónustu. „Hjúkrunarfræðingar og annað sérþjálfað starfsfólk Upplýsingamiðstöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Læknavaktarinnar svara símtölum frá almenningi…Lesa meira

true

Fjölmennt á opinn fund VLFA

Fjöldi fólks er kominn á Gamla Kaupfélagið á Akranesi þar sem opinn fundur Verkalýðsfélags Akraness, um ákvörðun matvælaráðherra um að stöðva hvalveiðar, er í þann mund að hefjast. Fundurinn er sendur út í beinu streymi á Vísi.is.Lesa meira

true

Arnar Þórisson er nýr forstjóri Líflands

Arnar Þórisson hefur verið ráðinn forstjóri Líflands frá og með 1. júlí næstkomandi en þá koma tvö ný einnig inn í framkvæmdastjórn félagsins. Arnar hóf störf hjá Líflandi árið 2013 sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs. Hann er iðnaðar- og rekstrarverkfræðingur að mennt og lauk M.Sc í iðnaðar- og rekstrarverkfræði árið 2011 við Háskólann í Álaborg. Árin 2011-2013,…Lesa meira