Þessi keppandi var mættur í íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi í gær. Ljósm. umfi.is

Fjöldi fólks mætt á Landsmót 50+ í Stykkishólmi

Landsmót 50+ er hafið í Stykkishólmi og fjöldi fólks mætt í bæinn. Fjöldi þátttakenda mætti á slaginu klukkan sex í gær í íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi þegar afhending hófst á mótsgögnum fyrir mótið. Þótt mótið sé að grunni hugsað fyrir fimmtíu ára og eldri geta allir 18 ára og eldri, sem áhuga hafa á keppnisíþróttum og vilja prófa nýjar greinar, keypt þátttökuarmband.

Fjöldi fólks mætt á Landsmót 50+ í Stykkishólmi - Skessuhorn