
Skallagrímur er mættur til leiks. Ljósm. ki.
Skrúðganga í fullum skrúða
Það var gífurlegur mannfjöldi sem safnaðist saman á Stillholti á Akranesi í morgun þegar skrúðgangan á Norðurálsmótinu var að leggja af stað. Alls eru skráðir um 1800 þáttakendur til leiks á mótinu sem fram fer um helgina. Sólin lét vita af sér við upphaf göngunnar og vonandi að hún verði á vaktinni alla helgina. Kolbrún Ingvarsdóttir ljósmyndari Skessuhorni stillti sér upp og tók nokkrar myndir á miðri leið af keppendum, þjálfurum og liðsstjórum þegar þeir örkuðu af stað upp í Akraneshöll þar sem setning mótsins fer fram.











