
Matvælaráðherra svarar fyrirspurnum úr sal.
Ráðherra er ánægð með ákvörðun sína
Fullt var út úr dyrum á opnum fundi Verkalýðsfélags Akraness á Gamla Kaupfélaginu á Akranesi í gærkvöld. Á að giska um 300 gestir sátu fundinn sem var hitafundur í sinni tærustu mynd. Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA opnaði fundinn og tók fyrstur til máls. Hann sagði málið ekki snúast um það hvort fólk sé með eða á móti hvalveiðum heldur um hvort ákvörðun matvælaráðherra standist lög, um lífsafkomu fólks og atvinnuöryggi, og hvort þjóðfélagið eigi að láta slía stjórnsýsluhætti viðgangast.