Fréttir

true

Skólakór Grundaskóla á Landsmóti barna- og unglingakóra

Nú á vormánuðum hefur verið nóg um að vera hjá skólakór Grundaskóla á Akranesi. Bæði eldri og yngir hópar hafa farið í leikskólaheimsóknir og yngri hópurinn fór nýlega í söng- og ísferð í Frystihúsið við Kirkjubraut þar sem hann söng nokkur lög. Fram kemur á vef Grundaskóla að um næstsíðustu helgi hafi eldri hópurinn tekið…Lesa meira

true

Lekum strandveiðibát komið til bjargar

Áhöfn björgunarskips Landsbjargar, Bjargar í Rifi, var í dag kölluð út á hæsta forgangi vegna strandveiðibáts sem leki hafði komið að. Útkallið kom laust fyrir klukkan 14. Báturinn var þá staddur rétt vestur af Snæfellsnesi, utan við Öndverðanesvita. Þyrla frá Landhelgisgæslunni var einnig kölluð út. Nærstaddir bátar komu skipverjanum til aðstoðar og var hægt að…Lesa meira

true

Fótboltamótin komin á fullt

Snæfellsnessamstarfið sendi nokkur lið á nýafstaðið Cheeriosmót Víkings í Reykjavík sem fram fór um helgina. Frábært veður var um helgina og kjöraðstæður til knattspyrnuiðkunnar. Stórglæsileg tilþrif sáust í Fossvoginum en sjötti, sjöundi og áttundi flokkur karla og kvenna öttu kappi um helgina.Lesa meira

true

Úrslit kunngjörð í stærðfræðikeppni grunnskólanema

Síðastliðinn laugardag voru kynnt úrslit og fram fór verðlaunaafhending í stærðfræðikeppni grunnskóla á Vesturlandi. Sem fyrr var það Fjölbrautaskóli Vesturlands sem stóð fyrir keppninni en Norðurál veitti vegleg peningaverðalaun. Úrslit urðu þau að í áttunda bekk varð Daníel Guðjónsson í Grundaskóla á Akranesi efstur, Andri Ólafur Jónsson úr Grunnskólanum í Borgarnesi annar og bekkjarsystir hans…Lesa meira

true

Kári tapaði á móti Augnabliki

Kári og Augnablik léku á laugardaginn í 3. deild karla í knattspyrnu og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Gestirnir komust yfir á 37. mínútu þegar Tumi Fannar Gunnarsson fékk boltann í vítateignum, hann sólaði tvo leikmenn Kára og lagði boltann í markið framhjá markmanni Kára. Heimamenn reyndu hvað þeir gátu til að jafna metin en…Lesa meira

true

Strákar sérstaklega hvattir til að bíða ekki með háskólanám

Ný könnun á meðal framhaldsskólanema, sem gerð var af Rannsóknum og greiningu fyrir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, leiðir í ljós umtalsverðan kynjamun á áformum stelpna og stráka þegar kemur að innritun í háskóla í haust. Könnunin var gerð í 13 framhaldsskólum á meðal þeirra nemenda sem stefna á útskrift í vor. Athygli vekur að aðeins…Lesa meira

true

Skagamenn byrjuðu Lengjudeildina með tapi

ÍA og Grindavík áttust við í 1. umferð Lengjudeildar karla á föstudaginn og fór leikurinn fram á Akranesvelli. Gestirnir komust yfir strax á fjórðu mínútu eftir sofandahátt í varnarleik heimamanna þegar hár bolti skoppaði inn fyrir vörn ÍA þar sem sóknarmaðurinn Dagur Ingi Hammer Gunnarsson var mættur og náði að skalla boltann. Árni Marinó Einarsson…Lesa meira

true

Telja hvalveiðar ekki samræmast markmiðum um velferð dýra

Matvælastofnun (MAST) hefur tekið saman skýrslu vegna eftirlits við veiðar á langreyðum við Ísland á síðasta sumri. Veiðar á langreyðum hófust á ný í júní og veiddust 148 hvalir á veiðitímabilinu. „MAST telur sérstaka ástæðu til að farið verði ítarlega yfir öll gögn og í kjölfarið metið hvort veiðar á stórhvelum geti uppfyllt markmið laga…Lesa meira

true

Skoða möguleika á opinberum stuðningi

Fyrr í vor leit út fyrir að Dalabyggð myndi taka í notkun nýja íþróttamiðstöð í Búðardal árið 2024. Segir Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri að það sé nú úr myndinni en enn sé stefnt að því að íþróttamiðstöðin verði klár og tekin í notkun árið 2025. Það er Eykt ehf. sem sjá mun um bygginguna. Dalabyggð…Lesa meira