Alfons á Svövu SH. Ljósm. Reynir Guðjónsson sem rær á Stellu SH.

Gengur vel á strandveiðunum – Löndunarbið jafnvel yfir þrír tímar

Mikið er um aðkomubáta í höfnum Snæfellsbæjar nú þegar önnur vika strandveiðanna er gengin í garð. Margir sjómenn veðja á að þar sé gott að gera út. Bátarnir eru einnig ólíkir að gerð og lögun og dæmi um allt upp í 30-40 tonna stálbát sem róið er á. Á Arnarstapa voru í síðustu viku hátt í 50 bátar og löndunarbið í samræmi við það, eða yfir þrír klukkutímar. Þar er einungis einn krani á bryggjunni. Einhverjir sjómenn ákváðu því að færa sig um set til Ólafsvíkur og Rifs.

Gengur vel á strandveiðunum - Löndunarbið jafnvel yfir þrír tímar - Skessuhorn