
Telja hvalveiðar ekki samræmast markmiðum um velferð dýra
Matvælastofnun (MAST) hefur tekið saman skýrslu vegna eftirlits við veiðar á langreyðum við Ísland á síðasta sumri. Veiðar á langreyðum hófust á ný í júní og veiddust 148 hvalir á veiðitímabilinu. „MAST telur sérstaka ástæðu til að farið verði ítarlega yfir öll gögn og í kjölfarið metið hvort veiðar á stórhvelum geti uppfyllt markmið laga um velferð dýra. Hvalirnir voru allir skoðaðir af eftirlitsdýralækni MAST í landi. Þá var viðhaft eftirlit með veiðum á 58 hvölum um borð í hvalveiðibátunum af hálfu starfsmanna Fiskistofu í umboði MAST,“ segir í tilkynningu.