
Samsett mynd. Skessuhorn
Skoða möguleika á opinberum stuðningi
Fyrr í vor leit út fyrir að Dalabyggð myndi taka í notkun nýja íþróttamiðstöð í Búðardal árið 2024. Segir Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri að það sé nú úr myndinni en enn sé stefnt að því að íþróttamiðstöðin verði klár og tekin í notkun árið 2025. Það er Eykt ehf. sem sjá mun um bygginguna. Dalabyggð hefur undanfarið verið að skoða fjármögnunarleiðir en tíðar stýrivaxtahækkanir nú í vor hafa hægt á þeirri vinnu. Þá segir Bjarki að Dalabyggð sé einnig að skoða hvort möguleiki sé á að fá opinberan stuðning til framkvæmdanna. Það sé í ljósi þess að Dalabyggð er undir hatti Brothættra byggða og Búðardalur sé einn örfárra þéttbýlisstaða sem ekki hefur íþróttamannvirki innan sinna marka.