
Til verðlaunaafhendingar voru boðaðir krakkar sem lent höfðu í tíu efstu sætum í hverjum árgangi. Ljósm. fva.
Úrslit kunngjörð í stærðfræðikeppni grunnskólanema
Síðastliðinn laugardag voru kynnt úrslit og fram fór verðlaunaafhending í stærðfræðikeppni grunnskóla á Vesturlandi. Sem fyrr var það Fjölbrautaskóli Vesturlands sem stóð fyrir keppninni en Norðurál veitti vegleg peningaverðalaun.