Frá háskóladeginum 2016 þar sem allir háskólar landsins kynntu námsframboð sitt. Ljósm. úr safni.

Strákar sérstaklega hvattir til að bíða ekki með háskólanám

Ný könnun á meðal framhaldsskólanema, sem gerð var af Rannsóknum og greiningu fyrir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, leiðir í ljós umtalsverðan kynjamun á áformum stelpna og stráka þegar kemur að innritun í háskóla í haust. Könnunin var gerð í 13 framhaldsskólum á meðal þeirra nemenda sem stefna á útskrift í vor. Athygli vekur að aðeins 37,6% útskriftarnema í umræddum skólum eru strákar. Þá er áberandi munur á hlutfalli stráka á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Á höfuðborgarsvæðinu eru strákar nærri 40% af útskriftarnemum en utan þess aðeins 34%. Hlutfallið er lægst á Akureyri og svo á Suðurlandi.

Strákar sérstaklega hvattir til að bíða ekki með háskólanám - Skessuhorn