Báturinn kominn í tog á eftir Björgu. Ljósm. Landsbjörg

Lekum strandveiðibát komið til bjargar

Áhöfn björgunarskips Landsbjargar, Bjargar í Rifi, var í dag kölluð út á hæsta forgangi vegna strandveiðibáts sem leki hafði komið að. Útkallið kom laust fyrir klukkan 14. Báturinn var þá staddur rétt vestur af Snæfellsnesi, utan við Öndverðanesvita. Þyrla frá Landhelgisgæslunni var einnig kölluð út. Nærstaddir bátar komu skipverjanum til aðstoðar og var hægt að dæla sjó úr bátnum og komast að mestu í veg fyrir lekann. Þá var aðstoð þyrlu afturkölluð. Björgin kom svo að bátnum skömmu síðar, og rétt fyrir klukkan þrjú var hann kominn í tog og Björg lögð af stað áleiðis til hafnar í Rifi. Ekki er ljóst hvers vegna leki kom að bátnum en skipverjann sakaði ekki.

Lekum strandveiðibát komið til bjargar - Skessuhorn