Fréttir

true

Borgfirðingar bjóða Úkraínufólki í kaffi

Á morgun, laugardaginn 21. maí, verður viðburður á Bifröst þar sem færi gefst á að hitta flóttafólkið frá Úkraínu sem kom til landsins í síðasta mánuði og hefur verið að koma sér fyrir á Bifröst í kjölfar stríðsátakanna í heimalandi þess. Markmið með viðburðinum er að fólk sem býr í nærsveitum, og aðrir sem vilja,…Lesa meira

true

Búkolla lokuð um tíma

Fram kemur í tilkynningu frá Akraneskaupstað að vegna ófullnægjandi húsnæðisaðstæðna verði lokað í Búkollu á Akranesi um óákveðinn tíma. Meðan það ástand varir verða fatagámar staðsettir við Fjöliðjuna að Smiðjuvöllum 9 en nytjagámar verða áfram staðsettir á gámasvæði Terra við Höfðasel.Lesa meira

true

Fengu listaverk að gjöf

Fyrr í mánuðinum fékk Listasafn Borgarness listaverkagjöf frá Íslandsbanka. Um er að ræða listaverkin Við Breiðafjörð eftir Svein Þórarinsson og verk eftir Ásgrím Jónsson. Íslandsbanki ákvað árið 2021 að gefa listaverkasafn bankans sem telur 203 listaverk til Listasafns Íslands og annarra viðurkenndra safna. Fram kemur á heimasíðu Borgarbyggðar að mikið af þessum listaverkum sem um…Lesa meira

true

Markmiðið að vera Skallagrími til sóma

Skallagrímur leikur í fjórðu deildinni í fótbolta þriðja árið í röð í sumar en liðið féll úr þeirri þriðju árið 2019. Liðið endaði í fimmta sæti í B riðli fjórðu deildar í fyrra, vann fjóra leiki, gerði þrjú jafntefli og tapaði sjö. Sölvi G. Gylfason er þjálfari liðsins eins og síðastliðin tvö ár og við…Lesa meira

true

Takmarkið að reyna að bæta okkur sem lið

Reynir Hellissandi leikur í A riðli 4. deildar í sumar en í fyrra tók liðið þátt í fyrsta skipti á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Þar endaði Reynir í sjötta sæti í C riðli með tólf stig í 16 leikjum, vann þrjá leiki, gerði þrjú jafntefli og tapaði tíu. Brynjar Kristmundsson tók við af Kára Viðarssyni sem…Lesa meira

true

Lagfæra bekki í minningarjóðri í Skallagrímsgarði

Í rjóðri í Skallagrímsgarði í Borgarnesi stendur minnismerki um Friðrik Þorvaldsson sem reist var árið 1996. Friðrik var frumkvöðull sem vann að ýmsum framfaramálum meðan hann bjó í Borgarnesi og var hann meðal annars öflugur hvatamaður að stofnun Skallagrímsgarðs. Fram kemur á heimasíðu Borgarbyggðar að auk minnismerkisins hafa afkomendur Friðriks og Helgu Guðrúnar Ólafsdóttur konu…Lesa meira

true

Þrír sundmenn hjá ÍA skrifuðu undir samning

Nú á dögunum skrifuðu landsliðsmennirnir Einar Margeir Ágústsson, Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir og Kristján Magnússon undir samning við Sundfélag Akraness um úthlutun úr afrekssjóði Sundfélags Akraness. Fram undan eru mörg verkefni hjá íslenska landsliðinu í sundi. Sundfólkið er á leiðinni til Glasgow að keppa á sterku alþjóðlegu móti og fer Kjell Wormdal yfirþjálfari hjá ÍA með…Lesa meira

true

Breskir og franskir áhrifavaldar kynntust fiskmenningu á Snæfellsnesi

Nú í þessari viku eru hér á landi staddir breskir og franskir áhrifavaldar og fréttamenn. Ferðin er skipulögð af Íslandsstofu sem bauð í fjögurra daga ferð um Snæfellsnesið þar sem íslenski fiskurinn er kynntur með ýmsum hætti. Verkefnið er hluti af markaðsherferð sem Íslandsstofa hefur staðið fyrir síðastliðin ár. Herferðin heitir Fishmas og er hluti…Lesa meira

true

Lyfta þrjátíu ára gróðurhúsi um tæpa tvo metra

Á garðyrkjustöðinni Laugalandi í Stafholtstungum er nú í gangi all óvenjulegt verkefni. Unnið er við að lyfta 1200 fermetra gróðurhúsi í heilu lagi um 1,85 metra. Verkið er unnið af hollenskum verktökum sem sérhæfa sig í að lyfta gróðurhúsum. Farið er í þessa framkvæmd til að bæta hagkvæmni lýsingar á plöntur sem ræktaðar eru í…Lesa meira

true

Hátíðarfundur í tilefni 80 ára afmælis Akraneskaupstaðar

Síðdegis í gær hélt bæjarstjórn Akraneskaupstaðar sérstakan hátíðarfund í tilefni 80 ára kaupstaðarafmælis á þessu ári. Jafnframt var þetta síðasti fundur fráfarandi bæjarstjórnar. Viðstaddir fundinn í sal voru auk þeirra verðandi bæjarfulltrúar sem taka brátt sæti í bæjarstjórn. Á fundinum var samþykkt samhljóða að í tilefni afmælisins verður stofnaður „Listkaupasjóður Akraneskaupstaðar“ sem hefur það markmið…Lesa meira