
Brynjar ásamt Guðjóni Þórðarsyni þjálfara Víkings Ólafsvíkur. Ljósm. af
Takmarkið að reyna að bæta okkur sem lið
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Reynir Hellissandi leikur í A riðli 4. deildar í sumar en í fyrra tók liðið þátt í fyrsta skipti á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Þar endaði Reynir í sjötta sæti í C riðli með tólf stig í 16 leikjum, vann þrjá leiki, gerði þrjú jafntefli og tapaði tíu. Brynjar Kristmundsson tók við af Kára Viðarssyni sem þjálfari liðsins fyrir þetta tímabil og er hann einnig aðstoðarþjálfari Víkings Ólafsvíkur sem leikur í 2. deild. Skessuhorn heyrði hljóðið í hinum nýja þjálfara og spurði hann fyrst hvernig undirbúningstímabilið hefði gengið. Brynjar segir að heilt yfir hafi hann bara verið nokkuð sáttur með veturinn en ef horft væri einungis í úrslit leikjanna þá væri hægt að tala um vondan og erfiðan vetur. Hins vegar hafi alltaf verið stígandi í frammistöðunni og því klárlega hægt að taka það inn í sumarið.\r\n\r\nHafa orðið miklar breytingar á liðinu frá síðasta tímabili? „Kjarninn í hópnum er enn til staðar, einhverjir hafa sagt þetta gott og ný andlit mætt í staðinn. Breytingar á milli leikja hafa hins vegar verið of miklar oft á tíðum. Ég hef heldur betur fengið að kynnast heiðarleikanum í 4. deildinni þar sem fótboltinn er einungis áhugamál og menn mæta þegar þeir komast. Það hefur verið skemmtileg áskorun og sett mig upp á tærnar.“\r\n\r\nNú hefur þú tekið við þjálfun liðsins af Kára Viðarssyni. Einhverjar áherslubreytingar sem koma með þér og er eitthvað samstarf milli ykkar og Víkings Ólafsvíkur? „Ég hef lagt mikla áherslu á það að menn hafi trú og hugrekki til þess að spila góðan og skemmtilegan fótbolta. Ég elska að sjá strákana taka smá áhættu. Láta boltann stjórna hraðanum á leiknum og fækka tilviljunum. Það hefur tekið smá tíma en strákarnir hafa tekið mjög miklum framförum í því. Við höfum fengið þrjá stráka á 2. flokks aldri til okkar á láni frá Víkingi. Við erum ekki með starfandi 2. flokk hérna á Snæfellsnesi þannig að það er frábært tækifæri fyrir þá að koma yfir í Reyni til þess að fá örvunina í því að spila fótboltaleiki. Stökkið á milli 3. flokks og að spila í 2. deildinni með Víking er ansi stórt og er þetta frábært milliskref fyrir þá.“\r\n\r\nAðspurður segir Brynjar að honum lítist bara þokkalega á þeirra riðil í 4. deildinni í sumar. „Þetta er sterkur riðill, Hvíti Riddarinn virðist vera nokkuð afgerandi lið í þessum riðli og held ég að hin liðin séu nokkuð áþekk. Ég hef fulla trú á því að við getum gefið þessum liðum almennilegan leik.“ En hver eru markmið sumarsins? „Fyrst og fremst að reyna að safna eins mörgum stigum og mögulegt er, að reyna að bæta okkur sem lið í hverri viku og skemmta fólkinu með góðum fótbolta.“ Brynjar segir að lokum að hann hlakki til að sjá þeirra fólk á vellinum í sumar: „Sjónarhornið úr stúkunni er mun betra en úr bílnum, ég get lofað ykkur því.“",
"innerBlocks": []
}