
Hér var búið að lyfta húsinu um 1,20 metra og stutt í að hækkunin væri komin í 1,85 m.
Lyfta þrjátíu ára gróðurhúsi um tæpa tvo metra
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á garðyrkjustöðinni Laugalandi í Stafholtstungum er nú í gangi all óvenjulegt verkefni. Unnið er við að lyfta 1200 fermetra gróðurhúsi í heilu lagi um 1,85 metra. Verkið er unnið af hollenskum verktökum sem sérhæfa sig í að lyfta gróðurhúsum. Farið er í þessa framkvæmd til að bæta hagkvæmni lýsingar á plöntur sem ræktaðar eru í húsunum. Gróðurhúsið var byggt árið 1990 og hafa agúrkur verið ræktaðar í því alla tíð. Að sögn Þórhalls Bjarnasonar garðyrkjubónda er áætlað að með nýjum ljósabúnaði megi bæta nýtingu raforkunnar sem notuð er um 15-20% við þessa aðgerð. Sú bætta orkunýting þýðir svo hlutfallslega enn meiri uppskeruaukningu.\r\n\r\nBlaðamaður Skessuhorns kom að Laugalandi upp úr hádegi í gær. Þá var vinnuflokkurinn sem skipaður er fimm Hollendingum búinn að hækka húsið um 1,2 metra og bjuggust þeir við að ljúka verkinu fyrir kvöldið. Verkið er framkvæmt með sérstökum búnaði sem verktakarnir taka með sér að utan. Áður en hafist er handa er búið að aftengja allar lagnir og skorið á burðarvirki gróðurhússins niður við sökkul. Sérstökum loftdrifnum membrum er komið fyrir á öllum burðarstoðum og húsinu smám saman lyft í heilu lagi. Þegar fullri hæð er náð eru burðarstoðir úr miðju hússins bútaðar niður í 1,85 metra lengd og bætt inn í þær burðarstoðir sem fyrir eru í úthringnum. Nýjar burðarstoðir eru settar undir hverja burst í blokkinni. Eftir að því verki verður lokið er klæddur álrammi utan á hliðar hússins og glerjað í hann. Þá verður farið í að koma nýrri hitalögn fyrir í húsinu ásamt öðrum frágangi. Þórhallur gerir ráð fyrir að hægt verið að hefja framleiðslu að nýju í húsinu í ágúst í sumar.\r\n\r\nÞó að framkvæmd sem þessi sýnist býsna umfangsmikil og flókin er þetta langt í frá að vera stærsta gróðurhús sem þessi vinnuflokkur hefur komið að hækkun á. Áður hefur hann meðal annars hækkað hús í Hollandi sem er fjórir hektarar að flatarmáli, eða 40 þúsund fermetrar, og næsta verkefni vinnuflokksins verður að hækka fimm hektara gróðurhús í Frakklandi.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"53581,53582\"]",
"innerBlocks": []
}