
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar 2018-2022 ásamt Sævari Frey Þráinssyni bæjarstjóra og Steinari Adolfssyni sviðsstjóra. Ljósm. mm.
Hátíðarfundur í tilefni 80 ára afmælis Akraneskaupstaðar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Síðdegis í gær hélt bæjarstjórn Akraneskaupstaðar sérstakan hátíðarfund í tilefni 80 ára kaupstaðarafmælis á þessu ári. Jafnframt var þetta síðasti fundur fráfarandi bæjarstjórnar. Viðstaddir fundinn í sal voru auk þeirra verðandi bæjarfulltrúar sem taka brátt sæti í bæjarstjórn. Á fundinum var samþykkt samhljóða að í tilefni afmælisins verður stofnaður „Listkaupasjóður Akraneskaupstaðar“ sem hefur það markmið að kaupa listaverk til notkunar í almenningsrýmum innan og utan dyra með áherslu á verk eftir listamenn frá Akranesi. Samþykkt var að stofnframlag í sjóðinn verði 2,5 milljónir króna á þessu ári. Ákvarðanir um kaup á listaverkum verður svo í höndum menningar- og safnanefndar.\r\n\r\nValgarður Lyngdal Jónsson forseti bæjarstjórnar stýrði fundi. Las hann meðal annars upp úr fundargerð fyrstu bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar frá 1942. Að því loknu var opnað fyrir almennar stjórnmálaumræður í bæjarstjórn. Allflestir bæjarfulltrúar kvöddu sér hljóðs og þeir sem nú víkja úr bæjarstjórn þökkuðu fyrir sig og rifjuðu með ýmsum hætti upp kjörtímabilið 2018 til 2022.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"53574,53575\"]",
"innerBlocks": []
}