
Sölvi G. Gylfason þjálfari Skallagríms. Ljósm. vaks
Markmiðið að vera Skallagrími til sóma
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skallagrímur leikur í fjórðu deildinni í fótbolta þriðja árið í röð í sumar en liðið féll úr þeirri þriðju árið 2019. Liðið endaði í fimmta sæti í B riðli fjórðu deildar í fyrra, vann fjóra leiki, gerði þrjú jafntefli og tapaði sjö. Sölvi G. Gylfason er þjálfari liðsins eins og síðastliðin tvö ár og við heyrðum í Sölva með sumarið sem framundan er.\r\n\r\nSölvi segir að undirbúningstímabilið hafi gengið ágætlega, þeir hafi spilað marga æfingaleiki og tekið þátt í Lengjubikarnum. Spilamennskan hefði oft á tíðum verið góð og auðvitað komið augnablik þar sem hlutirnir hefðu mátt fara betur, en það jákvæða var að fá sem flesta leiki yfir veturinn til að vera sem mest tilbúnir fyrir sumarið. Hafa orðið miklar breytingar á liðinu frá síðasta tímabili? „Já og nei, það hafa komið inn margir nýir leikmenn en að sama skapi höfum við náð að halda nokkrum lykilmönnum frá síðustu sumrum. Við höldum áfram hinu góða samstarfi við 2. flokk ÍA og höfum fengið öfluga leikmenn frá þeim. Það munu tveir erlendir leikmenn spila með okkur í sumar; Alexis Alexandrenne frá Frakklandi sem er sóknarsinnaður miðjumaður og Sergio Fuendes, kantmaður frá Spáni. Þá fengum við markmanninn Bjarka Rúnar Ívarsson, kantmanninn Davíð Frey Bjarnason og kant/miðjumanninn Elís Dofra G. Gylfason frá Kára. Auk þess fengum við miðjumanninn öfluga Sigurjón Loga Bergþórsson frá Sindra. Við bindum miklar vonir við þessa leikmenn og teljum að þeir styrki liðið mjög fyrir komandi sumar.“\r\n\r\nNú töpuðuð þið um miðjan apríl fyrir Reyni Hellissandi 5-1 í Mjólkurbikarnum sem síðan töpuðu í næstu umferð 0-16 fyrir ÍR sem leika í 2. deild. Hvað hefur gerst síðan þá og hvað segir þetta um ykkar styrkleika? „Sá leikur fer sennilega ekki sögubækurnar hjá Skallagrími en það vantaði marga leikmenn í þeim leik en að sama skapi verður að hrósa Reynismönnum fyrir mun meiri baráttu og vilja í þeim Vesturlandsslag og þeir áttu sigurinn skilinn. Það voru margir ungir leikmenn sem spiluðu og fengu góða reynslu. Ég held að sá leikur segi ekki mikið um okkar styrkleika þar sem það vantaði talsvert marga hjá okkur og við vorum að spila á ungu liði en ásamt því höfum við fengið inn marga nýja leikmenn sem hafa styrkt hópinn. Staðan í dag er sú að við erum með sterkari hóp núna þegar Íslandsmótið er að hefjast heldur en þegar við spiluðum bikarleikinn og það vantaði marga.“\r\n\r\nSölvi segir að þeim lítist vel á riðilinn þeirra í sumar, það séu sterk lið í honum og ljóst að þeir þurfi að mæta tilbúnir í hvern einasta leik. En hver eru markmið sumarsins? „Markmið sumarsins er að ná einu af fyrstu tveimur sætunum í riðlinum en KSÍ samþykkti að fjölga um eina deild sem tekur gildi á næsta ári og ef við náum fyrstu tveimur sætunum náum við að halda okkur í henni. Annars er markmiðið fyrst og fremst að æfa vel og spila góðan fótbolta ásamt því að vera Skallagrími til sóma innan sem utan vallar. Eitthvað að lokum? „Ég vil hvetja alla til að mæta á völlinn í sumar. Áfram Skallagrímur!“",
"innerBlocks": []
}