
Viktor Örn að flaka og gestirnir við borðið að mynda. Ljósm. Steinunn Þorvaldsdóttir.
Breskir og franskir áhrifavaldar kynntust fiskmenningu á Snæfellsnesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Nú í þessari viku eru hér á landi staddir breskir og franskir áhrifavaldar og fréttamenn. Ferðin er skipulögð af Íslandsstofu sem bauð í fjögurra daga ferð um Snæfellsnesið þar sem íslenski fiskurinn er kynntur með ýmsum hætti. Verkefnið er hluti af markaðsherferð sem Íslandsstofa hefur staðið fyrir síðastliðin ár. Herferðin heitir Fishmas og er hluti af verkefninu Seafood from Iceland.\r\n\r\nMargir þekkja auglýsingar Fishmas þar sem Egill Ólafsson fer með hlutverk Father Fishmas en þar er verið að leika sér að tungumálinu með tengingu við Father Christmas, eða jólasveininn. Björgvin Þór Björgvinsson er fagstjóri sjávarútvegs hjá Íslandsstofu og tók á móti blaðamanni Skessuhorns á bryggjunni í Stykkishólmi í gær, miðvikudag, þar sem hópurinn átti skemmtilegan dag framundan. Landsliðskokkurinn Viktor Örn Andrésson var að koma sér fyrir á bryggjunni með ferskan fisk í kari tilbúinn að sýna áhrifavöldum og fréttamönnum hvernig íslenski fiskurinn er verkaður en bauð þeim svo að taka til hendinni og prófa sjálfir. Þá var haldið í sex rétta hádegisverð á Sjávarpakkhúsinu í Stykkishólmi, kynnst heimagerðum plokkfisk á heimili Arnþórs Pálssonar, smáréttum í Vatnaveröldinni, kvöldverður var á Narfeyrarstofu og deginum slúttað með siglingu um kvöldið. Björgvin segir viðburðinn vera lokahnykk í markaðsherferð sem keyrð hefur verið í Bretlandi og Frakklandi síðastliðin tvö ár. Er Íslandsstofa í samvinnu við markaðsstofur erlendis til að kynna auðlindina íslensku úti í hinum stóra heimi.\r\n\r\n<em>Nánar má lesa um gestina og hvað á dag þeirra hefur drifið í Skessuhorni í næstu viku.</em>",
"innerBlocks": []
}