{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á morgun, laugardaginn 21. maí, verður viðburður á Bifröst þar sem færi gefst á að hitta flóttafólkið frá Úkraínu sem kom til landsins í síðasta mánuði og hefur verið að koma sér fyrir á Bifröst í kjölfar stríðsátakanna í heimalandi þess. Markmið með viðburðinum er að fólk sem býr í nærsveitum, og aðrir sem vilja, geti hitt flóttafólkið frá Úkraínu og boðið það velkomið í samfélagið. Forsprakkar verkefnisins eru hjónin Olgeir Helgi Ragnarsson og Theodóra Þorsteinsdóttir en sjálfboðaliðar hafa síðan tekið við keflinu og sjá um framkvæmd viðburðarins.\r\n\r\nDagskráin fer fram í Hriflu, sal Háskólans á Bifröst og hefst kl. 14. Á dagskránni verður svokallað Pálínuboð þar sem allir eru hvattir til að koma með kökur, brauðmeti eða annað á veisluborð fyrir hina úkraínsku gesti. Þá verða tónleikar á dagskrá þar sem Olgeir og Theodóra koma fram með dætrum sínum, söngkonunni Hönnu Ágústu og leik-/og söngkonunni Sigríði Ástu, ásamt Jónínu Ernu Arnardóttur, píanóleikara, og eiginmanni hennar Vífli Karlssyni. Vilja þau hvetja sem flesta til að mæta og kynnast þessum nýju sveitungum sem hafa samfélaginu mikið að bjóða.",
"innerBlocks": []
}
Borgfirðingar bjóða Úkraínufólki í kaffi - Skessuhorn