Fréttir

true

Áttatíu flóttamenn búnir að koma sér fyrir á Bifröst

Núna eru um 80 flóttamenn frá Úkraínu komnir á Bifröst og búnir að koma sér fyrir. Um bráðabirgðahúsnæði er að ræða meðan verið er að greiða götu fólksins varðandi framtíðar búsetu hér á landi. Að sögn Heiðrúnar Helgu Bjarnadóttur, verkefnastýru fyrir móttöku flóttafólksins, kom fólkið í þremur hollum, síðasti hópurinn kom síðastliðinn föstudag. „Við höfum…Lesa meira

true

Vísitala þorsks að hækka eftir lækkun í þrjú ár

Út er komin skýrsla Hafrannsóknastofnunar þar sem gerð er grein fyrir framkvæmd og helstu niðurstöðum stofnmælingar botnfiska á Íslandsmiðum sem fram fór dagana 28. febrúar til 24. mars á þessu ári. Niðurstöður eru bornar saman við fyrri ár, en verkefnið hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti ár hvert frá 1985. Þorskur að bæta sig Stofnvísitala…Lesa meira

true

StéttVest fordæmir hópuppsögn Eflingar

Trúnaðarráð Stéttarfélags Vesturlands samþykkti ályktun á fundi sínum í gær sem haldinn var í Alþýðuhúsinu í Borgarnesi. Þar kemur fram að trúnaðarráðið telji að stéttarfélög sem launagreiðendur, eigi að vera til fyrirmyndar og koma fram af lipurð og virðingu við starfsfólk sitt, á sama hátt og þau krefjast þess af öðrum launagreiðendum. „Trúnaðarráð Stéttarfélags Vesturlands…Lesa meira

true

Kjartan í stað Bjarka í stjórn SFV

María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistuheimilanna, var kjörin formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, SFV, á aðalfundi samtakanna sem fram fór á þriðjudaginn i liðinni viku. Hún tekur við af Birni Bjarka Þorsteinssyni, framkvæmdastjóra Brákarhlíðar í Borgarnesi, sem hverfur úr stjórn eftir tíu ára veru þar, nú síðast sem formaður. Nýr í stjórn kemur m.a. Kjartan Kjartansson…Lesa meira

true

Skagakonur hefja leik í Mjólkurbikarnum

ÍA og Fjölnir mætast í kvöld í fyrstu umferð Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu og fer leikurinn fram í Akraneshöllinni. ÍA leikur í sumar í fyrsta skipti í 2. deild á Íslandsmótinu en Fjölnir er deild ofar í Lengjudeildinni eftir að hafa komist upp í fyrra. Sigurvegarinn úr þessari viðureign fær heimaleik á móti annað hvort…Lesa meira

true

Óbreytt ráðgjöf í rækjuveiðum vegna skorts á rannsóknum

Hafrannsóknastofnun ráðleggur í samræmi við varúðarsjónarmið að rækjuafli á svæðinu við Snæfellsnes frá 1. maí 2022 til 15. mars 2023 verði ekki meiri en 393 tonn. „Engar nýjar upplýsingar liggja fyrir um stofnstærð rækju við Snæfellsnes þar sem ekki voru farnir stofnmælingaleiðangrar árin 2021 og 2022. Því er ekki hægt að uppfæra ráðgjöfina og er…Lesa meira

true

Rekstrarhagnaður Akraneskaupstaðar 721 milljón meiri en áætlað var

Ársreikningur Akraneskaupstaðar fyrir árið 2021 var lagður fram í bæjarráði þriðjudaginn 13. apríl síðastliðinn og var vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn Akraness sem fór fram síðastliðinn þriðjudag. Fram kemur á vef Akraneskaupstaðar að rekstrarniðurstaða ársins sé jákvæð um 578 milljónir króna sem er 721 milljónum króna betri afkoma en ráð var fyrir gert í…Lesa meira

true

Nýr vallarþulur á Akranesvelli

Þeir sem voru mættir á leik Skagamanna og Víkings í Bestu deild karla í knattspyrnu síðasta sunnudag tóku vafalaust eftir nýrri rödd sem ómaði um völlinn. Hana átti enginn annar en Örn Arnarson sem er liðsmaður og einn af forsprökkum ÍATV þar sem vönduð vinnubrögð og fagmennska eru í fyrirrúmi og hægt er að taka…Lesa meira

true

Kjartan Karvelsson ráðinn hafnarvörður við Stykkishólmshöfn

Kjartan Jóhannes Karvelsson hefur verið ráðinn hafnarvörður við Stykkishólmshöfn, en alls bárust sex umsóknir um starfið. Þá hefur Jón Páll Gunnarsson verið ráðinn í sumarafleysingar á höfninni. Á vef Stykkishólmsbæjar er greint frá ráðningu Kjartans. Hrannar Pétursson hefur gegnt starfi hafnarvarðar allt frá árinu 2005, en hann ætlar að breyta til og sagði því starfi…Lesa meira

true

Gert ráð fyrir löglegum körfuboltavelli í nýrri íþróttahöll

Um miðjan apríl auglýsti byggingarnefnd Dalabyggðar alútboð á byggingu nýrrar íþróttamiðstöðvar í Búðardal. Lengi hefur verið beðið eftir bættri aðstöðu til íþrótta í þorpinu og nú hyllir undir að það verði að veruleika. Stefnt er að byggingin verði risin og tilbúin til notkunar 1. júní árið 2024, eða eftir tvö ár. Íþróttamiðstöðin mun samanstanda af…Lesa meira