Rekstrarhagnaður Akraneskaupstaðar 721 milljón meiri en áætlað var

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Ársreikningur Akraneskaupstaðar fyrir árið 2021 var lagður fram í bæjarráði þriðjudaginn 13. apríl síðastliðinn og var vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn Akraness sem fór fram síðastliðinn þriðjudag. Fram kemur á vef Akraneskaupstaðar að rekstrarniðurstaða ársins sé jákvæð um 578 milljónir króna sem er 721 milljónum króna betri afkoma en ráð var fyrir gert í fjárhagsáætlun ársins með viðaukum. Það skýrist fyrst og fremst af auknum tekjum. Skatttekjur voru 516 milljónum króna hærri en á fyrra ári. Þá hækkaði einnig framlög Jöfnunarsjóðs um 296 m.kr. frá fyrra ári. Aðrar tekjur jukust um 460 milljónir króna á milli ára.\r\n\r\nRekstur málaflokka var í takti við fjárhagsáætlun. Heildareignir í lok árs námu samtals 15.550 milljónum króna og hækkuðu um 706 milljónir króna milli ára. Heildarskuldir og skuldbindingar námu samtals 6.517 milljónum króna og hækkuðu um 68 milljónir króna á milli ára. Langtímaskuldir lækkuðu um 138 milljónir króna, lífeyrisskuldbinding hækkaði um 141 milljón króna, vegna áhrifa hækkunar lífaldurs á lífeyrisréttindi og skammtímaskuldir hækkuðu um 66 milljónir króna. Rekstrarafgangur ársins var jákvæður um 507 milljónir króna fyrir A hluta og jákvæður um 71 milljón króna fyrir B hluta.\r\n\r\nFjárfesting í innviðum var umtalsverð á síðasta ári og var samtals 1.062 milljónir króna. Meðal helstu framkvæmda á árinu voru 221 milljón króna í nýja þjónustumiðstöð við Dalbraut, 206 milljónir króna í nýjan leikskóla, 116 milljónir króna vegna breytinga í Grundaskóla, 204 milljónir króna í gatnagerð og gangstíga, 80 milljónir króna vegna íþróttamannvirkja og 47 milljónir króna í reiðhöll Dreyra á Æðarodda.\r\n\r\nÍ ræðu Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra á fundinum sagði hann meðal annars að mikilvægt væri að nýta þau sóknartækifæri sem væru í atvinnumálum og uppbyggingu því tækifærin væru svo sannarlega til staðar. „Í byggingu er nýr leikskóli, stækkun Grundaskóla, bygging nýs íþróttahúss og framundan uppbygging Samfélagsmiðstöðvar. Veruleg uppbygging húsnæðis er nú í gangi á Akranesi og er áætlað að um 640 milljónir króna fari í uppbyggingu nýrra gatna, gangstíga og reiðvega á árinu,“ sagði Sævar Freyr.",
  "innerBlocks": []
}
Rekstrarhagnaður Akraneskaupstaðar 721 milljón meiri en áætlað var - Skessuhorn