
Örn Arnarson er nýr vallarþulur á Akranesvelli. Ljósm. vaks
Nýr vallarþulur á Akranesvelli
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þeir sem voru mættir á leik Skagamanna og Víkings í Bestu deild karla í knattspyrnu síðasta sunnudag tóku vafalaust eftir nýrri rödd sem ómaði um völlinn. Hana átti enginn annar en Örn Arnarson sem er liðsmaður og einn af forsprökkum ÍATV þar sem vönduð vinnubrögð og fagmennska eru í fyrirrúmi og hægt er að taka undir. Örn tók þarna formlega við starfi vallarþuls og við keflinu af Pétri Ottesen sem sinnti þessu mikilvæga starfi frá árinu 1995 til ársins 2021, eða í alls 26 ár. Það er því ljóst hvað bíður Arnar næsta aldarfjórðunginn eða svo. Á síðu ÍATV er Erni óskað til hamingju með vegtylluna og Pétri fráfarandi vallarþuli þakkað fyrir frábær störf.",
"innerBlocks": []
}