
Hluti af því teymi sem vinnur að móttöku flóttafólksins á Bifröst. F.v. Björk Vilhelmsdóttir, Heiðrún Helga Bjarnadóttir, Anastasia Amor og Þorvaldur Hjaltason. Ljósm. aðsend.
Áttatíu flóttamenn búnir að koma sér fyrir á Bifröst
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Núna eru um 80 flóttamenn frá Úkraínu komnir á Bifröst og búnir að koma sér fyrir. Um bráðabirgðahúsnæði er að ræða meðan verið er að greiða götu fólksins varðandi framtíðar búsetu hér á landi. Að sögn Heiðrúnar Helgu Bjarnadóttur, verkefnastýru fyrir móttöku flóttafólksins, kom fólkið í þremur hollum, síðasti hópurinn kom síðastliðinn föstudag. „Við höfum bæði verið að fá fólk beint af flugvellinum en einnig í gegnum Fjölmenningarsetrið. Þetta eru aðallega konur með börn, eitthvað af eldra fólki auk einstaklinga; fjölbreyttur og ólíkur hópur víða að úr Úkraínu,“ segir Heiðrún.\r\n\r\n<strong>Lögð áhersla á virkni</strong>\r\n\r\nFólkið hefur fengið úthlutað húsum og herbergjum með sameiginlegu rými í húsum við Hraunin, Garða og Kotin í háskólaþorpinu. Í stærri íbúðum hafa fjölskyldur komið sér fyrir en auk þess býr fólk í húsnæði þar sem eru herbergi með baði en með aðgengi að sameiginlegu eldhúsi og stofu. „Gestirnir borða svo í Hreðavatnsskála þar sem fólkið frá Hraunsnefi er staðarhaldarar. Nú þegar er meira að segja hluti af hópnum kominn í vinnu hjá þeim við þjónustu og önnur störf. Þetta er hörkuduglegt fólk og mikill kraftur í því. Fólkið sem til okkar er komið er staðráðið í að gera það allra besta úr aðstæðum sínum og margir stefna á að setjast hér að. Það er svo mitt og okkar hér hjá Borgarbyggð að greiða götu þess eins og kostur er. Fólkið er afskaplega líflegt, skipulagði til dæmis sjálft plokkdag og fegraði umhverfið hér á Bifröst. Þá kennir ein konan ensku og allir sem vilja eru komnir í íslenskunám fjórum sinnum í viku á vegum Símenntundarmiðstöðvarinnar. Loks er samfélagsfræðsla á vegum Vinnumálastofnunar að fara í gang. Við leggjum mikla áherslu á virkni, bæði af okkar hálfu sem gestgjafa og fólksins sjálfs.“\r\n\r\n<strong>Atvinnutilboð streyma inn</strong>\r\n\r\nHeiðrún segir að búið sé að fara í heimsókn í Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi. „Það eru foreldrar sem eru áhugasamir um að skrá börnin sín strax í skóla, ekki síst til að þau geti kynnst öðrum börnum og falli sem fyrst inn í góða rútína. Það eru 10-15 börn á grunnskólaaldri og einhver þeirra byrja því strax í skólanum. Það er lán að í skólanum á Varmalandi er mikil áhersla lögð á útikennslu á vorin og því eru kjöraðstæður þar til að börnin geti aðlagast aðstæðum og kynnst jafnöldrum sínum um leið. Á leikskólaaldri eru 5-6 börn og hefja einhver þeirra aðlögun í leikskólanum Hraunborg nú í byrjun maí. Þá höfum við sett upp leikhorn víðsvegar um svæðið, þar sem foreldrar geta hist með börnin sín. Margir komu skömmu fyrir páska og þá var páskafrí í skólunum en sjálfboðaliðar Rauða Krossins sáu um afþreyingu með ýmsum hætti. Margir ur hópnum hafa gengið á Grábrók og skoðað umhverfið hér i kring og deila upplýsingum og gönguleiðum með restinni af hópnum. Við leggjum áherslu á að nýta svæðið og njóta þessa einstaka umhverfis hér á Bifröst. Þetta hefur gert það að verkum að margir hafa lýst því yfir að hér vilji þeir setjast að. Við erum því að greiða götu þeirra sem vilja setjast að í sveitarfélaginu. Það er svo einkar ánægjulegt að það rignir yfir fólkið atvinnutilboðum. Þetta er jú bara ósköp venjulegt fólk en í óvenjulegum og erfiðum aðstæðum; fólk með mikinn drifkraft og á vinnualdri. Húsnæðismálin til frambúðar verður kannski helsta áskorunin,“ segir Heiðrún.\r\n\r\nÚkraínska fólkinu býðst að fara með rútu í Borgarnes alla morgna klukkan 10 og heim aftur eftir hádegið. Hafa margir notfært sér það. „Fólkið fer í sund og nýtur þess sem í boði er í Borgarnesi. Allir hafa verið til fyrirmyndar og þakklátir fyrir það sem gert er fyrir það,“ segir Heiðrún Helga að endingu.\r\n\r\n<strong>Gestir í heimsókn</strong>\r\n\r\nSíðasta vetrardag komu Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra í óopinbera heimsókn og ræddu við fólkið á Bifröst. Á heimasíðu Háskólans á Bifröst kemur fram að gestirnir hafi fengið höfðinglegar móttökur. Guðni forseti hafði boðað komu sína á Bifröst til að heilsa upp á flóttafólkið og þá sem haft höfðu veg og vanda af undirbúningi móttöku þess. „Boðið var upp á kaffi og kökur í Kringlunni. Var gestunum vel fagnað og er óhætt að segja að glatt hafi verið á hjalla þennan fyrsta sumardag ársins,“ segir í frétt frá skólanum.\r\n\r\nNýir heimamenn á Bifröst gripu tækifærið og sýndu forseta og félagsmálaráðherra þá aðstöðu sem komið hefur verið upp á staðnum. Hefur m.a. verið sett upp virkniherbergi með leikaðstöðu fyrir börn og lítil kennslustofa. Þá hefur verið opnuð birgðastöð, en þangað geta íbúarnir frá Úkraínu sótt eftir þörfum í gjafavarning ýmiss konar, sem spannar allt frá smærri búsáhöldum og leikföngum, að spilum, fötum, teppum og skrautmunum.",
"innerBlocks": []
}