Alþýðuhúsið í Borgarnesi.

StéttVest fordæmir hópuppsögn Eflingar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Trúnaðarráð Stéttarfélags Vesturlands samþykkti ályktun á fundi sínum í gær sem haldinn var í Alþýðuhúsinu í Borgarnesi. Þar kemur fram að trúnaðarráðið telji að stéttarfélög sem launagreiðendur, eigi að vera til fyrirmyndar og koma fram af lipurð og virðingu við starfsfólk sitt, á sama hátt og þau krefjast þess af öðrum launagreiðendum. „Trúnaðarráð Stéttarfélags Vesturlands tekur undir fordæmingu forseta ASÍ á þeim gjörningi forystu Eflingar að ráðast í hópuppsögn á starfsmönnum sínum og harmar þær árásir sem forsetinn hefur orðið fyrir vegna sinnar framgöngu í þessu máli. Trúnaðarráðið skorar á Eflingu stéttarfélag og stjórn þess að draga til baka hópuppsögn á starfsmönnum skrifstofu Eflingar og biðja starfsmennina afsökunar á þessu frumhlaupi meirihluta stjórnarinnar. Stéttarfélag sem kemur fram við starfsfólk sitt á þann hátt sem stjórnendur Eflingar hafa gert, getur ekki verið trúverðugur málsvari launafólks. Stéttarfélag Vesturlands vill ekki eiga í neinum samskiptum við þau verkalýðsfélög sem láta þetta háttarlag Eflingar átölulaust.“",
  "innerBlocks": []
}
StéttVest fordæmir hópuppsögn Eflingar - Skessuhorn