Hrannar Pétursson, Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri og Kjartan Jóhannes Karvelsson. Ljósm. Stykkishólmsbær.

Kjartan Karvelsson ráðinn hafnarvörður við Stykkishólmshöfn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Kjartan Jóhannes Karvelsson hefur verið ráðinn hafnarvörður við Stykkishólmshöfn, en alls bárust sex umsóknir um starfið. Þá hefur Jón Páll Gunnarsson verið ráðinn í sumarafleysingar á höfninni. Á vef Stykkishólmsbæjar er greint frá ráðningu Kjartans. Hrannar Pétursson hefur gegnt starfi hafnarvarðar allt frá árinu 2005, en hann ætlar að breyta til og sagði því starfi sínu lausu á dögunum. Hrannari er þakkað fyrir gott og óeigingjarnt starf í þágu Stykkishólmsbæjar og óskað velfarnaðar í framtíðarstörfum.\r\n\r\nKjartan er fæddur og uppalinn Hólmari, en flutti til Danmerkur frá Stykkishólmi til að sækja menntun. Hann er lærður mjólkurfræðingur, útskrifaðist með sveinspróf í mjólkurfræði frá Kold Collage í Danmörku árið 2016, en hann er jafnframt formaður Mjólkurfræðingafélags Íslands. Kjartan er með lyftarapróf og löggildingu vigtarmanns. Þá er hann einnig vel kunnur starfi hafnarvarðar í Stykkishólmi eftir að hafa sinnt því í sumarafleysingum árin 2009-2012.\r\n\r\n„Ég hef mikinn áhuga á öllu því sem viðkemur starfinu og þegar ég sá stöðu hafnarvarðar auglýsta þá vissi strax að mig langaði að sækja um, enda þekki ég starfið vel eftir að hafa unnið hjá Stykkishólmshöfn með Hrannari Péturssyni áður en ég flutti út. Ég hef mikinn almennan áhuga á nýtingu, gæðum og að styrkja og einfalda hlekki virðiskeðjunnar og mun leggja mitt af mörkum þannig að þjónusta á höfninni komi til með að vera áfram framúrskarandi eins og hún hefur verið hjá Hrannari,“ segir Kjartan.",
  "innerBlocks": []
}
Kjartan Karvelsson ráðinn hafnarvörður við Stykkishólmshöfn - Skessuhorn