Búðardalur. Ljósm. úr safni/ sm.

Gert ráð fyrir löglegum körfuboltavelli í nýrri íþróttahöll

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Um miðjan apríl auglýsti byggingarnefnd Dalabyggðar alútboð á byggingu nýrrar íþróttamiðstöðvar í Búðardal. Lengi hefur verið beðið eftir bættri aðstöðu til íþrótta í þorpinu og nú hyllir undir að það verði að veruleika. Stefnt er að byggingin verði risin og tilbúin til notkunar 1. júní árið 2024, eða eftir tvö ár. Íþróttamiðstöðin mun samanstanda af íþróttasal, þjónustukjarna með búningsklefum og lyftingasal ásamt útisundlaug. Heildarstærð byggingarinnar verður 1.335 fermetrar og þá er útisvæði sundlaugar með sundlaugarkeri, vaðlaug og heitum pottum um 670 fermetrar.\r\n\r\nSamkvæmt útboðslýsingu verður gengið inn í íþróttamiðstöðina á 1. hæð þar sem öll starfsemi i húsinu fer fram. Þá verður gert ráð fyrir lagnarými sundlaugar í kjallara og áhorfendarými og tæknirými á 2. hæð hússins. Þar verður hægt að iðka ýmsar íþróttir, bæði æfingar og keppni, en miðað er við að í því verði mætt kröfum til keppni í körfubolta. Að byggingu mannvirkja lokinni skal aðlaga hæð lóðar að hæðarsetningu aðliggjandi lóða og ganga frá lóðinni í samræmi við lóðarhönnun. Upphaf framkvæmda hefst þegar verkkaupi hefur með formlegum hætti tekið tilboði bjóðanda, en verklok eru eins og fyrr segir áætluð 1. júní 2024. Bjóðendur í verkið skulu skila tilboði og gögnum fyrir klukkan 14, föstudaginn 20. maí næstkomandi.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_52974\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-52974 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/04/Gert-rad-fyrir-loglegum-korfuboltavelli-i-nyrri-ithrottaholl_1-600x199.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"199\" /> Nýja íþróttahúsið verður staðsett sunnan við Dalabúð.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Gert ráð fyrir löglegum körfuboltavelli í nýrri íþróttahöll - Skessuhorn